Þegar maður smellir á "Innlegg yðar" (þarna í nágrenni við "Hvað er nýtt") þá fær maður upp einhverskonar form af "Hvað er nýtt".
Til þess að í raun og veru fá upp 'sín innlegg' þá þarf maður að fara á síðuna sína (t.d. í gegnum 'Heimavarnarlið') og velja þar "Finna öll innlegg".
Þetta finnst mér mis.
-
Já og svo verður maður að fara í Athvarf yðar til sjá eigin anganvísanir. Iss!
Já og svo verður maður að fara í Athvarf yðar til sjá eigin anganvísanir. Iss!
...Sem ekki er hægt að sýsla með.
Engin svör berast en það er ekki þar með sagt að ég sé hættur að skoða þetta.
Nú tók ég eftir því að ef ég smelli á Innlegg yðar þá fæ ég upp 23 blaðsíður af þráðum. Hver full síða hefur 50 þræði og mér sýnist á öllu að enginn þráður birtist tvisvar. Þetta telst þá saman í 1134 þræði sem koma upp sem innlegg vor. Jæja, ég er eingöngu skráður fyrir 630 innleggjum svo mér sýnist á öllu að hér sé eitthvað ekki eins og það á að vera.
Skilur einhver hvernig þetta virkar?
-
Já, Innlegg yðar er listi yfir þá þræði sem maður á innlegg í. Sem sagt maður getur átt fleirri en eitt inlegg í hverjum þræði á þeim lista.
Til að skoða öll innlegg manns verður maður að fara í Athvarfið og smella á Finna 0ll innlegg.
Svo að ég á hálf innlegg út um allt?
Ég er með 1134 þræði
Ég er með 631 innlegg
Eitthvað fiskilegt í gangi hér?
-
Skoðar innlegg Limbra, sér að þau eru á 310 síðum, margfaldar síðufjöldan með 18 (innleggjafjölda á hverri síðu) og fær út 5580 innlegg.
Ég finn enga fiskilykt.
Þú ert að sjá eitthvað allt annað en ég Regína. Heimavarnarliðalistinn segir mér að ég sé með 636 innlegg. Hvar þú sérð innlegg hlaupa á þúsundum veit ég ekki.
Þar fyrir utan þá er ég að tala um Innlegg yðar sem eingöngu er hægt að skoða fyrir sjálfan sig og þá er farið í gegnum hlekk til hægri á forsíðu Gestapó.
-
Hagræðir gleraugunum á nefinu og hallar sér spekingslega aftur í stólnum
Það sem Regína meinar er að ef þú ferð inn í athvarf yðar og smellir þar á finna öll innlegg þá koma upp 310 síður af innleggjum af því að það er búið að bæta við gömlu innleggjunum þínum sem glötuðust við núllstillinguna í fyrra.
Talan sem kemur upp í athvarfi yðar er sumsé innleggjafjöldi síðan í fyrra en í þín innlegg finnst allt.
Málið er að innleggjatalan sem er gefin upp er aðeins frá byrjun september 2006 þegar Gestapó opnaði galtómt. Nú er búið að endurheimta mikið af fortíðinni, og hún er bæði í Innlegg yðar og Öll innlegg.
Svo að þessi 5580 innlegg sem þú talar um dreifast á 1184 þræði hjá mér?
-
Jamm. Þú segir þá ekki margt á hverjum. Klórar sér í höfðinu
Hvernig er þetta hjá mér? eyðileggur daginn fyrir Regínu
Hvað færð þú margar blaðsíður þegar þú ferð á Innlegg yðar og hvað eru margir þræðir á síðustu síðunni Skabbi?
-
Já og svo verður maður að fara í Athvarf yðar til sjá eigin anganvísanir. Iss!
...Sem ekki er hægt að sýsla með.
Nákvæmlega! Ég er með tvær og þrjár vísanir á sama þráðinn og enga þessara anganvísana valdi ég mér sjálf, nema e.t.v. hvað er í matinn. Ég hef engan djefuls áhuga á Betu Hikkoríhnetu eða því hver fann upp kokteilsósuna. Það er frekar leiðingjarnt að ekki sé búið að laga þetta. Anganvísanirnar voru líka margfalt þægilegri eins og þær voru fyrir þessar síðustu breytingar.
Hvað færð þú margar blaðsíður þegar þú ferð á Innlegg yðar og hvað eru margir þræðir á síðustu síðunni Skabbi?
-
44 blaðsíður... á síðustu blaðsíðunni er ekkert og á næstsíðustu blaðsíðunni þrír þræðir.