[ Þetta fyrsta innlegg þessa nýja gests var upphaflega í öðrum þræði og er því aðeins úr samhengi. Sá þráður hentaði hinsvegar illa til nýliðakynninga - Gæzlan ]
Þar sem mér er illa við að orð mín séu slitin úr samhengi breytti ég texta þeim sem hér var upphaflega og set í staðinn
kveðju til allra hér inni og nenna að lesa þetta.
Komið sæl öllsömul og afsakið ef ég hef gengið á snið við viðteknar venjur hér.
Ég er eins og nafnið gefur til kynna þver og þrjóskur, gamaldags í hugsun en að öðru leit skítsæmilegur karakter.
Mér finnst alltaf jafn hallærislegt þegar fólk reynir að klóra með afturlöppunum yfir eigin tilvistarkreppu með því að moka svívirðingum og illgirni yfir aðra.
Ferð þú offari í dulargerfi?
Allt er nú grafið upp...
Nei ég fer einfari í engu gerfi
Þeir voru nú nokkrir fararnir hér fyrir lokun. Ert þú einn þeirra afturgenginn?
það eru til aðrir og betri þræðir til að kynna sig þú getur tld stofnað nýan þráð sem heitir sælt veri fólkið og sagt tld ég heiti sí og so og er komin til að vera því hér vyrðist skemtilegt og fólk hið besta
Þakka þér fyrir Grýta :)
Ég er nú ekki mikið fyrir formlegheit eða aðrar kurteisivenjur svo ég skellti bara mínum illa ígrunduðu hugsunum hér inn, svo verður bara að hafa það hvernig fólk tekur því :)
Vertu engasíður velkominn hér er hátt í þak
Já, velkominn. En það er ekki of vel séð þegar verið er að leggja inn á þræði sem hafa ákveðnar reglur, og þeim reglum ekki fylgt. Ekki skortir aðra þræði til að leggja inn á. xT
Stekkur hæð sínaRoðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfiðGefur frá sér vellíðunarstunuDæsir mæðulega og lítur út um gluggannKlórar sér í höfðinuHrökklast aftur á bak og hrasar viðBrosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndiðStyður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt erGlottir eins og fíflGrípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátrixTBlótar herfilega og rífur hár sittStrunsar út af sviðinu og skellir á eftir sérBrestur í óstöðvandi grátStarir þegjandi út í loftiðLjómar upp
Hvaða tittlingaskítur er þetta inni á milli orðanna hjá þér, Herra Þvergirðingur?
Vertu velkominn Þvergirðingur. Farðu um innflytjendahliðið og leitaðu upplýsinga um notkunarreglur
Velkominn sértu. Óheppilegur þráður til að tjá sig á (eins og margoft hefur koimð fram)
Þakka þér fyrir Grýta :)
Ég er nú ekki mikið fyrir formlegheit eða aðrar kurteisivenjur svo ég skellti bara mínum illa ígrunduðu hugsunum hér inn, svo verður bara að hafa það hvernig fólk tekur því :)
Þarfagreinir bendir réttilega á hluti sem ekki eru leyfðir hér á Gestapó. Svo kallaðir broskallar sem smíðaðir eru úr greinarmerkjum og innskotstáknum eru ekki leyfðir hér frekar en önnur heimasmíðuð tákn. Hér gildir orðið ofar öllu.
Vjer bjóðum yður hjer með formlega velkominn.
Vjer erum hinsvegar sammála því að eigi er þetta heppilegur þráður til kynningar og væri því best ef honum yrði skipt upp í tvo þræði...