Er reyndist bara trúin tál,
trauðla að marka hana:
Glötuð er þá sérhver sál
sanntrúaðra Kana.
...
...
eitthundrað og átta til
eiga mig að finna.
Er í skuldum eftir spil
ekki mun því linna
Eitthundrað og átta til
eiga mig að finna.
...
Þambaði drullu, þrekk og saur.
Þannig leysist vandinn.
Margir lítinn eiga aur.
Oft þá laus er fjandinn.
Þamba drullu, þrekk og saur.
Þannig leysist vandinn.
-----------------------------------
. . .
. . .
. . . sífellt dýpra sekkur hann
með sögðu hverju orði.
ég þekki Znata mætan mann
mikinn á þessu storði
sífellt dýpra sekkur hann
með sögðu hverju orði.
.
.
..planta vill með páli hér
pottablómi sínu
útum jarðir Uppi fer,
öllum veldur pínu;
planta vill með páli hér
pottablómi sínu
-----------------------------------
. . .
. . .
. . . að ljúga hér & ljúga þar,
& ljúga aðeins meira.
ungum kennd mér aðferð var
ef ég vildi fleira
að ljúga hér & ljúga þar,
& ljúga aðeins meira.
.
.
..fuglinn sá er fallinn er
flýgur ekki lengur
hagvísindahallinn mér
hugnast einsog gengur
fuglinn sá er fallinn er
flýgur ekki lengur
-----------------------------------
. . .
. . .
. . . einhverntíma verður víst
Vilhjálmur að hætta.
þó við viljum suma síst
sjá fara óbætta
einhverntíma verður víst
Vilhjálmur að hætta.
.
.
..þó eina sumarssælustund
sverði fengi að veifa
Til valda Hanna Birna brýst
og borgina vill sætta.
(Einhverntíma verður víst
Vilhjálmur að hætta.)
Fordómana finna má
hjá flestum þegnum landsins.
Skemmist ei mín ljúfa lund,
né leggst á munninn skeifa,
þó eina sumarssælustund
sverði fengi að veifa.
Fordómana finna má
hjá flestum þegnum landsins.
Nýbúa má þjaka' og þjá,
með þunga orðabrandsins.
Fordómana finna má
hjá flestum þegnum landsins.
Hundraðföld er hamingjan,
ef hjartað fær að ráða.
Heilinn veit svo margt og man,
menn sér gerir háða,
en hundraðföld er hamingjan,
ef hjartað fær að ráða.
því er best að bíða og vona
að bráðum lagist ástandið.
Gamli ekki gera svona
glatað virðist Íslandið
því er best að bíða og vona
að bráðum lagist ástandið.
Gætt'að hvað þú gerir maður,
að gaspra svona bölvað þvaður![/s]
Drottinn forðum gjörðist graður,
gat hann son, var fjarska glaður. >>>er þetta ofstuðlun kannski?
Gætt'að hvað þú gerir maður,
að gaspra svona bölvað þvaður!
...
Væri núna vitið meira
að ver'á hjóli, ekki keyra.
Nú bensínverð nær upp í eyra
og álag þungt á bílsins dreyra.
Væri núna vitið meira
að ver'á hjóli, ekki keyra.
En aldrei fá nein skúra-ský.
skaðað mína kæti.
Ekkert man ég eftir því
að öðrum týndi fæti.
En aldrei fá nein skúra-ský.
skaðað mína kæti.
Böndum var mig bugðið á
brjálaðan að vanda.
er ég síðast fékk að fá
fyrnagóðan landa
Böndum var mig bugðið á
brjálaðan að vanda.
út ég gekk með alla þrjá
enda kappi mestur.
Ruddar Uppa réðust á
rétt er hann var sestur.
Út ég gekk með alla þrjá
enda kappi mestur.
Hefði betur haldið mig
heima þennan daginn.