Ójá! tilhugsunin er nóg
Hefur þú óvart hringt til útlanda og talað við viðkomandi í nokkurn tíma án þess að átta þig á að þú ert að tala við útlönd?
skellihlær Nei.
Hefurðu gert símaat í neyðarnúmer.
Já. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Hefur þú þurft að hringja í Neyðarlínuna?
Nei eða jú eða hvað.
Hefurðu einhverntíma fengið biðtón hjá neyðarlínnunni.
Einhvurn tíman setti 911 einhvurs konar lás á símann minn, ég gat ekki notað hann meðan ég beið eftir sjúkrabíl.
Hefur þú fullvissað einhvurn um að allt eigi eftir að vera í stakasta lagi, þó þú vitir að sú sé ekki raunin?
Já nema hvað, ég er amma.
Hefur þú einhvern tímann logið að ömmu þinni?
Nei.
Hefurðu logið að mömmu þinni.
Vitanlega. Nei, nei, það verður ekkert vín þarna...
Hefur þú neyðst til að nota vasaklútinn þinn í stað skeinipappírs?
Tjah.. jaaá... það var samt meira til að hlífa henni greyinu við sannleika sem ég var ekki viss um að hún gæti höndlað á þeim tímapunkti. Hún veit hinsvegar það rétta í dag. - Til Dulu.
Eh.. nei. Held ég eigi ekki einu sinni vasaklút.
Hefur þú knúsað mömmu þína upp úr þurru og af ástæðulausu? Ljómar upp
Já, alltof oft.
Hefurðu gleymt af hverju þú þurftir að læsa að þér.
Jaaaá... svona eiginlega næstum eða þannig.
Hefur þú labbað inn á einhvern sem hefði kannski átt að læsa að sér?
Ójá!
Hefur verið gengið inn á þig þegar þú hefðir kannski átt að læsa að þjér?
Já já , oft.
Hefurðu skammast þín fyrir einhvern ættingja þinn.
Neih, ég er svo vel ættuð. Glottir
Hefur þú verið mjög stolt(ur) af einhverjum ættingja þínum?
Já!
Hafa ættingjar þínir skammast sín fyrir þig?
Já einhverntíma, þá sérstaklega steingeiturnar í fjölskyldunni.
Hefur þú gert í því að láta aðra skammast sín.
Alveg örugglega.
Hefur þú lent í því að vera að keyra til Akureyrar, en villst og lent á Hveravöllum?