Já það hefur alltaf komið best út í tortillu.
Hefur þú hugmynd hvað á að gera við ora fiskbúðing í dós þegar upptakarinn er ónýtur.
Það sama og á að gera ef upptakarinn virkar - henda honum.
Hefur þú borðað kjúklinga-carpaccio? Glottir eins og fífl
OJ nei.
Hefurðu haft hælsæri.
Já.
Hefur þú fengið nuddsár á geirvörturnar?
Nei, en ég hef fengið sár eftir brjóstagjöf, telst það með.
Hefur þú legið í sömu stellingu alla nóttina.
Nei, líklega ekki.
Hefur þú oltið fram úr rúminu án þess að vakna?
Nei
Hefurðu sofið á svo þunnri dýnu að þér fannst þó skárra að sofa á gólfinu.
Nei. En það er líklega ekki að marka mig. Ég sef ekki nema ég sé að falla í dauðadá. Og þegar svo er komið þá skiptir litlu á hverju ég sef.
Hefur þú vegið þig í dag?
Já.
Hefur þú blótað kuldanum í dag?
Já þrátt fyrir svellþykka prjónapeysu frá mömmu.
Hefurðu þakkað fyrir að sé næstum komin helgi.
Já.
Hefur þú misst þvag eða saur af hræðslu?
Nei.
Hefur þú í hyggju að fara snemma að sofa í kvöld? Jafnvel strax eftir vinnu?
Nei. Hélt að það væri öllum ljóst að Jarmi sefur ekki.
Hefur þú gaman af hanaslag?
Hana hverja? blóðugt? Nei það held ég ekki.
Hefur þú hnigið niður af hlátri?
Já, einu sinni.
Hefur þú selt (eða reynt að selja) aðra manneskju?
Haha já ég seldi einu sinni systur mína.
Díllinn var sá að hún fór á stefnumót með einhverjum gaur, en hann fór í ríkið fyrir mig í staðin. Glottir
Hefur þú verið seld(ur) ?