Já, það hefur komið fyrir.
Hefur þú stjórnað skipi, þó litið væri?
Já, það höfum vér gert, er skipstjórinn þurfti að bregða sér í vélarrýmið.
Hafið þér steytt á skeri?
Hægt er að færa rök fyrir því.
Hafið þér birzt upp úr jörðunni?
Birtzt, já. Af moldu er ég kominn.
Hafið þér migið í saltan sjó?
Tæknilega séð já, það var samt afar huggulegt salerni á litlu skipi sem sturaðist beint út í sjó. En milliliðalaust - nei.
Hefur þú lifað í núinu?
Nei það er erfitt að lifa í einhverju sem er bara blekking.
Hefur þú verið viss um að þú viljir eyða þessu innleggi?
Já.
Hefur þú tínt appelsínur af tré, og kreist þér alvöru appelsínusafa?
Nei því miður.
Hefur þú velt fyrir þér snilligáfu þess sem fyrst datt í hug að brugga bjór?
Nei.
Hafið þér velt fyrir yður óheppni þess, er fyrstur bruggaði bjór?
Nei.
Hefur þú gleymt þessum þræði?
Nei. Ekki svo ég muni.
Hefur þú séð Sound Of Music?
Nei, aldrei.
Hefur þú fengið sælgæti á öskudaginn gegn því að syngja ekki?
Já.
Hefur þú eitthvað á móti því að ég spyrji persónulegra og nærgöngulla spurninga á þessum þræði.
Nei
Hefur þú trú á að ég muni svara þeim spurningum heiðarlega?
Já.
Hefur þú hug á að spyrja að einhverju persónulegu í næsta innleggi?
Nei.
Er hægt að spyrja ópersónulega hér?
Já.
Hefur þú skoðun?