Sykurinn er altaf á borðinu gæska. .Tekur sykurkarið og stráir 3 skeiðum af sykri yfir diskinn hennar krossgötu.
Það er ekki að spyrja að.
Hámar í sig sykraða lifrarpylsu og kartöflur
Þetta er nú í uppáhaldi hjá mér næst á eftir alíslenskri kjötsúpu.
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Við ættum kannski að hafa spilavist hérna eitthvert kvöldið.
Ljómar upp Það er góð hugmynd.
Fer ekki að koma kvöldkaffi?
Verður maður ekki að sækja um inngöngu í þessi samtök, reglan um þvagleggi og hlandkoppa freistar óneitanlega... vona að þeir séu af gömlu gerðinni, þetta nýmóðins dót er ónothæft í alla staði. Heldur langa ræðu um kosti gamalla tíma
Kemur með rjúkandi heitt lútsterkt kaffi, rjómakönnu og sykurkar og leggur á borð
Kem ég með sopann.
Sýpur á rjúkandi kaffibollanum sínum og sest niður
Tók einhver veðrið?
Já, en hann lofaði að skila því aftur.
Jæja, það var nú gott. Sötrar kaffið
Það leit svo ljómandi vel út veðurfarslega á Fagurhólsmýri í gærkvöldi.
Já og tiltölulega lyngt. Þeir spáðu því að klæðningin á veginum myndi bara fjúka einhverja 15 metra í kvöld. (NB - Ég hef persónulega horft á það gerast rétt við Fagurhólsmýri)
Nú! Það er óvenju milt.
Sötrar enn
Fáðu þér kaffisopa, nóg handa öllum.
Þakka þér fyrir. Fær sér kaffi, setur litla mjólkulögg útí. Dæsir ánægjulega. Og hvurra manna ert þú, krossgata mín? Sýpur á
Slær göngustaf sínum í gólfið Er ekkert kex?
Teipar fyrir lonníetturnar hjá HerbirniJújú, bara leita.
Ég taldi víst Herbjörn minn þú kæmir með kexið fyrst ég kom með kaffið, sykurinn og rjómann.
Það verður að senda þig með miða næst. Það hlýtur að leynast flatbrauð með hangiketi í ísskápnum síðan í gær.
Ég vissi ekki að ég þyrfti að leggja til veitingar hér. Jæja, maður verður þá að lifa við flatbrauðið.
Hér eru alltaf kóbaltmixtúrur, en mér hefur virst maður þurfa koma með annað. Annars eldaði Regína þetta fína slátur fyrr í dag.
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Ég verð að reyna að bæta ráð mitt á morgun og koma með eitthvað. Skrifar á miða