umm súraldin er sætt
Ég er að hugsa um að fara að sofa, a.m.k. innan hálftíma.
Pysti Garboar fékk huga vorn til þess að hvarfla til tölvubréfa þeirra, er vér þurfum að senda í dag.
Fergesji er maður sem skilur muninn á bréfi og pósti. Honum ber hól fyrir, þó ekki alkóhól.
Leggur frá sér blútinn, fýldur á svip.
Ég var að spá hvort einhver nennir að kenna mér (þó vitað sé að ég verði búin að gleyma því að morgun) hvernig maður bögglar hlekk á síðu saman, þannig að á maður geti skrifað td hér og ef áhugasamur klikkar þar á, þá bingó, viðkomandi er mættur á fyrrnefndu síðuna! Þetta þykir víst líta betur út en slóðin öll.
Annars var ég að rifja upp vísu sem ég lærði um helgina og finnst skemmtileg:
Ekki vil ég yrkja níð,
um afköstin hjá guði.
En þegar hann bjó til Þverárhlíð,
þá var hann ekki í stuði.
Þekkir einhver höfundinn?
Ég þakka gott hljóð.
Kvæðishöfund þekkjum vér eigi, en hlekk má rita svo:
[url = http://baggalútur.is/gestapo/viewtopic.php?p=1068389#1068389 ]Hlekkur[/ url]
Fyrri hlekkinn eyðilögðum vér með bilum umhverfis jafnaðarmerkið, framan við annan hornklofa, og aftan við skástrik í seinni skipun.
Veldu Vitna í til þess að sjá hvernig ég geri svona.
Sum sagt: þú setur samasem merki og svo slóðina fyrir aftan [url textann fremst.
Svona erum við bláir nú hugul- og hjálpsamir. Ljómar upp
Ljómar upp í kóbaltbláum bjarma.
Híar á Golíat
Þekkirðu ekki höfundinn að vísunni, þú þarna mýrarmonkið þitt?
Svona erum við bláir nú hugul- og hjálpsamir. Ljómar upp
Þið eruð ágætir, enda næstum grænir....
Híar á Golíat
Þekkirðu ekki höfundinn að vísunni, þú þarna mýrarmonkið þitt?
Mig minnir að höfundurinn sé Þorsteinn á Skálpastöðum. Merkilegt að Lunddælingur skuli tala um að aðrar sveitir séu ljótar...
Híar á Golíat
Þekkirðu ekki höfundinn að vísunni, þú þarna mýrarmonkið þitt?
Mig minnir að höfundurinn sé Þorsteinn á Skálpastöðum. Merkilegt að Lunddælingur skuli tala um að aðrar sveitir séu ljótar...
Lundareykjadalur er nú síst ljótir en aðrar sveitir þarna um slóðir. Norðurárdalurinn er þó sínu skástur.
Annars er Skarðsheiðin, Skeljabrekkufjall og Hafnarfjall ágætis fjöll og allt í lagi að horfa á þau.