Vjer erum að velta fyrir oss fjölda gestapóískra laumupúka Sjer enga laumupúka.
Ég hugsa yfirleitt ekki mikið.
Ég er að hugsa um hversu freistandi það er að fara 'veikur' heim og leggjast undir feld.
Ég var að hugsa hvernig alheimurinn liti út ef allir væru vinir og hjálpuðust að . Ef nágranni minn og frágranni minn kollhnýsuðust og bara voru kaffidrykkjufélagar. Ef hún þykjustunni amman mín húnI Ikiram í Sómalíu sendi jólakort til frænku minnar á Barðaströnd .
með mynd af uppáhalds Moskunni sinni.Ef strákurinn í Brasilíu hann sem á ekki neitt spilaði fótbolta í úrvalsdeildarliði Vals
Hann sem á allt gæti sprautað Armani kölnarvattni yfir helvítis líklyktina á Haiti og allar ömmur og afar í alheiminum gætu myndað bræðralag gegn óréttlæti.
Ég er að hugsa um að maður notar orðið hvor þegar átt er við tvennt og hver þegar átt er við fleira en tvennt. Svo er talaðum hvorki í neitun, "það er hvorki þetta né hitt". Af hverju ætli það sé þá ekki hverki þegar átt er við fleiri möguleika en tvo?
Starir þegjandi út í loftið
ég er að hugsa um að fara inní rúm að lesa smávegis, en ég bara get ekki lyft bossanum á mér uppúr þeim bleika.
Ég er að hugsa um silfur og magn af því. Lengdir fyrir innri og ytri bauga. Verð á grammi og sanngjarna álagningu. Já og lógó og hvað það kosti mikið að láta búa til stimpla fyrir sig. Svona til að leyfa ykkur að skyggnast inn í kollinn minn þennan miðvikudagsmorgun.
Er að hugsa hvort það þurfi að kalla út ísbjarnargreiðasveitina fyrst fréttist af ísbirni norður í landi. Var ekki annars búið að ákveða að hætta svona ísbjarnagreiðum?
Ég er að hugsa of mikið.
Til að gefa ykkur dæmi :
Ófrjósemisaðgerð karlmanna.
Taugafrumur.
Boðspennu.
Kaffivélar.
Na/K dælur.
Sáðpíplur.
Og margt margt fleira.
Starir þegjandi út í loftið
Klórar sér í höfðinu
Í kjölfar síðasta innleggs hér er ég núna að hugsa um innsæispumpur.
ég er að hugsa um hvort einhver sé hugsanlega að lesa yfir sig.
Ég er fersk. Ég er að læra hvernig börnin verða til. Glottir eins og fífl
Ég er að hugsa of mikið.
Til að gefa ykkur dæmi :
Ófrjósemisaðgerð karlmanna.
Taugafrumur.
Boðspennu.
Kaffivélar.
Na/K dælur.
Sáðpíplur.
Og margt margt fleira.
Starir þegjandi út í loftið
Klórar sér í höfðinu
Þetta er eins og "Finndu eitt sem ekki passar..." sem var alltaf í Æskunni í gamla daga er gamall. Í þessu tilviki myndi það vera Kaffivélar...
Annars er ég að huxa hvað ég vildi að eggjakakan sem ég var að klára að borða hefði verið stærri... hún var of góð.
NÚNA er ég hætt að hugsa. Loksins. flissar