Fyllist nostalgíu en eigi áfengi
Vjer vorum að gera þá óþægilegu uppgötvun að vjer gætum brátt þurft að fara að huga að næturóþolsrannsóknum.
Jú ég er sammála Vlad, það er farið að líða að næturóþoli hjá mér þar sem morgunógleðin mun ráða ríkjum ef ég fer ekki að sofa núnaBrestur í óstöðvandi grát
ég var að koma heim og var hengja upp þvott. núna stefni ég á draumaheima, því það er vinna á morgun eins og aðra daga. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Vjer hyggjumst sömuleiðis núna hefja draumaheimaheimsóknir, sjer í lagi til að komast að því hvort Öskjuhlíðin er ennþá gjósandi 2000 metra hátt eldfjall eins og hún var síðast er vjer heimsóttum draumaheima.
Ég var að laga mér kaffi og búa mig undir fornleifafræðirannsóknir í Baggalútíu.
Var að klára að snæða kvöldverð.
Vjer vorum að velta fyrir oss hvort mikill gestafjöldi hjer undanfarinn sólarhring hafi hreinlega sett Gestapóið á hliðina þar eð það er venju fremur hægvirkt í kvöld.
Ég var og er einmitt að velta nákvæmlega því sama fyrir mér og Vlad.
Ég var að horfa á einn af þeim leikjum á þúrörinu sem ég er að missa af hjá sonunum á klakanum.
Vjer vorum að velta fyrir oss hvort mikill gestafjöldi hjer undanfarinn sólarhring hafi hreinlega sett Gestapóið á hliðina þar eð það er venju fremur hægvirkt í kvöld.
Gúðskelóv, ég hélt að þjónustan við okkur útlendingana hefði versnað svona eftir að flestir hinir baunapóarnir fluttu aftur til Baggalútíu.
Ég var að skoða Marsvínin í höfninni. Ég held að veslings kvikindin séu villt og rati ekki út aftur, ekki voru þau að éta makríl núna.
Ég var að misskilja eitthvað Spotifytengt dóti sem ég sá á Fésbókinni þannig að Leonard Cohen og Tom Waits hefðu haldið einhverja tónleika saman. Hugsaði af hverju í fjáranum ég hefði aldrei heyrt af því áður - en þegar í ljós kom að þetta var bara einhver spilunarlisti eða plata með lögum af tónleikum þeirra beggja, sitt í hvoru lagi, kom það mér bæði lítið á óvart og olli mér vonbrigðum. Skrýtin tilfinning það.
Það hefðu verið magnaðir tónleikar...
Algjörlega. Það má enn láta sig dreyma um að af þeim verði einhvern tímann.
Var að spila sælgætissamstæðuleik satansBlótar herfilega og rífur hár sittog nú var ég að uppgötva að ég þarf að fara að sinna næturóþolsrannsóknumStarir þegjandi út í loftið
Ég var að dreypa örlítið á brennivíni. Svona rétt til að koma mér í gírinn fyrir morgundaginn. xT
Ég var að viðurkenna eyrnabólgu, mögulega lungnaþembu, líklega bronkítis og allskyns ófögnuð sem hrjá mig þannig að ég verð bara að liggja útaf í dyngju minni og vonast til að þjónarnir láti sjá sigHrökklast aftur á bak og hrasar við
Ég var að lesa sextíuogþriggja síðna árshátíðarþráð frá árinu 2008 og rifja upp hvað þetta var ótrúlega skemmtileg skemmtun og svo miklu meira en það. Þáþráir þegjandi út í loftið