Ég var að binda hey í rúllubagga og drekka bjór. Dæsir mæðulega Það mættu fleiri bændur veita eins vel og sá sem ég rúllaði fyrir fram á nótt.
Vjer vorum að stofna nýjan laumupúkaþráð, þann fyrsta í háa herrans tíð Ljómar upp.
Reyna að svæfa dóttur mína
Það vorum vér aftur á móti eigi að gera.
Vér fórum á leiksýningu sveitunga vorra. Fær sér rækilega í nefið Engin grímuverðlaun á leiðinni þangað, en skíðegóð skemmtun.
Fá mér öl.
Ég var að íhuga að fara að sofa. Ég geri ráð fyrir að endurtaka það innan skamms.
Vér vórum að skúra Kargssetrið. Til að koma oss í jólaskapið var Live after death drengjanna í Iron Maiden sett á fóninn, eins og gjört hefir verið við slík tilefni síðan téð snilld kom út. Til að fullkomna snilldina var Borgfirzkur bjór drukkinn við hvurt tækifæri
Ég var að hengja ýmislegt glingur á blágreni.
Ég var að sækja sauðdrukkinn bróður minn eitthvað suður á bæi. Hann habbbði verið að telja fósturvísa í rollum, fyrst sínum eigin síðan annarra. Einhvur bóndakurfurinn ákvað að gá hvursu mikið af jagermeister og bola bróðir minn gæti innbyrt. Þegar tilraunin fór út um þúfur var ég ræstur út.
Alltaf fjör í sveitinni á miðvikudögum...
Endaði Jägermeistertilraun húskarlsins eins og sú síðasta, þ.e. með pípulagningahreinsun morguninn eftir?
Ég var útí búð að kaupa klósettpappír... get núna skitið áhyggjulaus allavega næsta mánuðinn...
Endaði Jägermeistertilraun húskarlsins eins og sú síðasta, þ.e. með pípulagningahreinsun morguninn eftir?
Ekki nefndi hann það sérstaklega, en hann þegir nú yfirleitt um svona hluti.
Ég var að halda upp á daginn með fölöli.