Hróið kallast köttur einn
með klofið eyra og kalinn.
Um síðir verður soldið seinn
að skunda heim svo alinn.
Hér getur þú lesið þér til um dverghendur, Skaki: http://www.heimskringla.net/bragur/Dverghenda.php
Einnig er annars staðar á þessari síðu farið yfir rétta stuðlasetningu, og þar á meðal gnýstuðla.
Hrósað fyrir heimsku þvaður
hefur þú,
oss. Þú sauðski aumi maður
út úr kú.
Kúmen er af kryddum best
í kínamat.
Át ég með því upp minn hest
og á mig gat.
Gatið efra gagnast vel
görnin líka.
Lokkar oft mitt lúna þel
lekker píka
(takk fyrir leiðsögn Billi, ekki veitir af)
Gatið efra gagnast vel
og görnin löng.
Lokka oft mitt lúna þel
lekker göng.
(takk fyrir leiðsögn Billi, ekki veitir af)
Dverghendusíðlínur verða að enda á stúf, ofangreint er tillaga að breytingu.
Hann er stærri en stendur til
þó stelpur flissi
Migið hef yfir Merkigil
í morgunpissi
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann Hvað varð af friðargæzlunni?
Gæzlan drekkur gambra, *hikk*,
og gubbar'í skál.
Blút og fagurbláan drykk,
er betra'að xT
Glottir eins og fífl
Göngum ekki götuna
að Gerpistá.
Læðumst inn í Löduna
og leggjum á.
Á ég kannske'að yrkja ljóð
um okkar tíð.
Glösin mörg og fögur fljóð
oft fæla hríð.
Hríðarbyljir herja á
mitt hugarþel.
Bófum skal ég berja á
er banka stel.
Telemark er listaleikur,
leggja þraut.
Fer ég niður, fráleitt smeykur,
fanna braut.
Brautin verður bein og greið
ef bara þú
fyrir hana finnur leið
framhjá trú.
Rómarborgar ribbaldar
radísum
stálu, til að stafla þar
stuðlunum.
Stuðlunum er standa hér
ég stal úr búð.
Afgangurinn eflaust fer
undir súð.