Eftirfarandi er orðrétt frá ritstjórn og skulu menn hlýða því í hvarvetna, ellegar sæta harðri refsingu:
Þennan sáttmála samþykkja menn sem skrá sig inn á Gestapó:
Þau skrif sem hér birtast eru alfarið á ábyrgð höfunda og endurspegla ekki á nokkurn hátt skoðanir eða viðhorf aðstandenda Baggalúts.
Notendur samþykkja að hafa í frammi almenna kurteisi í skrifum sínum og koma á allan hátt drengilega fram hver við annan. Hverskyns dónaskapur, ofbeldi og svívirðingar eiga ekki heima á spjallrásum þessum. Verði notendur uppvísir að slíku verða þeir umsvifalaust útilokaðir frá frekari þátttöku í umræðum og þeim refsað grimmilega, með aðstoð miðla og særingarmanna.
Notendur samþykkja að upplýsingar um þá og skrif þeirra verði vistaðar í gagnagrunni. Slíkar upplýsingar verða að öllu jöfnu ekki afhentar öðrum án samþykkis notanda (nema gegn ríflegri greiðslu).
Að auki fá menn þessar upplýsingar um hegðun:
* Notendur Gestapó skulu vera kurteisir, upplífgandi, hófsamir, smekkvísir, geðgóðir, umburðarlyndir og friðsamir.
* Skrif skulu einkennast af sannleiksþrá, fræðilegri nákvæmni, vönduðu málfari og góðri stafsetningarkunnáttu.
* Umræður skulu fara fram á íslensku, vandaðri.
* Umræður skulu fara fram á friðsamlegum nótum.
* Drengskapur skal viðhafður í öllum leikjum.
* Klúryrði, meiðandi athugasemdir, dónaskapur, frekja og hvers kyns skrílsháttur verður ekki liðinn.
* Reykingar eru leyfðar á Gestapó.
* Áfengisneyslu skal stillt í hóf.
Um Myndir:
* Myndasafn er uppfært endrum og sinnum.
* Ef engin mynd í safni er þér að skapi skaltu snúa þér til ritstjórnar.
* Örar myndbreytingar eru ekki vel liðnar.
Um Félagsrit:
* Félagsrit skulu vera fræðandi, skemmtileg og innihaldsrík.
* Félagsrit skulu ekki innihalda blaður, orðagjálfur, tittlingaskít ellegar argaþras.
* Félagsrit skulu vera höfundi sínum til sóma.
Sæl öll...Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið.
á ég að vera hrædd, ég meina, sko...Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
ég lofa að reyna vera þæg, góð og fara eftir öllum þessum reglum en úffff
Þetta er tómt þvaður þessar reglur.
Eina reglan sem þú þarft að muna er að styggja ekki tígrisdýrin.
Velkomin. Vertu bara ekki hársár, og skemmtu þér vel.
Annars eru tígrisdýrin flest orðin tannlaus. Fer í tígrisdýrahelt búr og læsir að sér
Taktu bara þann gamla til fyrirmyndar því hann kann allveg að temja tígrisdýrin.
Sæl öll...Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið.
á ég að vera hrædd, ég meina, sko...Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
ég lofa að reyna vera þæg, góð og fara eftir öllum þessum reglum en úffff
Þú gleymdir einni reglunni, að setja punkt á eftir setningu.
Annars eru þessar reglur, ef þú skoðar þær vel, ekkert annað en venjulegir mannasiðir (sem sumir kunna ekki , því miður). Vertu svo velkomin.
Og muna að sýna sínar bestu hliðar öllum stundum.
Hvernig stendur á því að þessi þráður er opinn? Starir þegjandi út í loftið
Opinn? Starir þegjandi út í loftið gerði ég eitthvað vitlaust?Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Jamm, hlýtur að vera... með miklum særingum og andkosmískum hugsunum tókst okkur að loka honum fyrir nokkrum árum... ótrúlegt... Byrjar særingar
Byrjar væringar
Byrjar hræringar
Ertu ekki að hræra í vitlausri súpu?Glottir eins og fífl
Ja hérna, getur þessi nýliði verið sá útvaldi, þessi sem ritað er um í 7. spádómsbók Myglars.
Vers 65746655.354G: Og sjá, 4 tákn endalokanna mun birtast í nýliða sem hefur vald til að ljúka upp áður læstum þráðum...
Svo reyndar kemur eitthvað um fjölmiðlafrumvörp sem munu þýða endalok Gestapó... en ég held að það gerist ekkert...
Starir þegjandi út í loftið
Nei því miður er ég ekki þessí útvaldi....enStarir þegjandi út í loftið en ég er náin ættingi svo það ætti að teljast nokkuð gott.Ljómar upp
Kannski er hún þá mögulega sá úlfaldi sem minnst er á í apókrífsku bókunum ...
Eru úlfaldanir mínir sloppnir aftur? Best að reyna að smala þeim saman í hvelli, þetta gæti farið allt í vitleysu annars.Starir þegjandi út í loftið
Hvað fær maður fallega konu fyrir svona marga úlfalda í Egyptalandi? Kannski þá fallegustu?
Átt þú kannski fallegustu úlfaldana í Egyptalandi?