Væri það dónaskapur ef ég spyrði á móti, hvurn andskotann þig varðar um það? Brosir eins og enginn sé morgundagurinn
Ertu eitthvað viðhvæmur í dag?
Hvað fær þig til láta þér detta það í hug? Snýtir sér í rimlagardínuna
Ertu sumsé bara alltaf svona?
Hvað gerist ef maður er fullur af próbangasi?
Áttir þú sumrunginn á Hvalvíkinni?Býður forseta í nefið
Má ekki segja það á meðan hann var ókominn af fjalli? Hnerrar hátt og innilega Afsakið!
Guð hjálpi þér. Á meðan hann var, er hann kominn núna?
Hvað, fylgistu ekki með kona?Felur sig í víðáttumiklum og villugjörnum afkimum alnetsins
Hefði ekki verið réttara að byrja setninguna á: Mátti?
Eða jafnvel: Hefði ekki mátt ... ?
Væri ekki í lagi að hætta þessu spurnigaflóði?
En ekki hvað?
Verðum við ekki að halda spurningunum áfram þangað til eitthvað svar fæst við þeim?