Hengir eftirfarandi tilkynningu á alla ljósastaura í Baggalútíu
Heiðvirtu sam-Gestapóar.
Þar sem ritstjórn hefur dregið að gefa endanlegt svar um árshátíðahald hafa Gestapóar rætt um það á þráðum sem og sín á milli að standa sjálfir að árshátíðinni. Því hefur verið stofnað Gleðifélag Gestapó og ákveðið að árshátíð skal haldin og bið ég ykkur nú að taka frá laugardagskvöldið 11. nóvember fyrir mestu og bestu Gestapóagleði sem haldin hefur verið svo lengi sem elstu menn muna.
Í Gleðifélaginu eru nú þegar Anna Panna, Þarfagreinir, Tigra og Heiðglyrnir, ef einhverjir fleiri hafa áhuga á að koma að undirbúningnum þá má endilega senda póst á eitthvert okkar. Og líka ef einhver hefur spurningar, hugmyndir að skemmtiatriðum, þema eða lumar jafnvel á húsnæðishugmyndum fyrir svona hitting má endilega hafa samband!
Mig langar núna að gera formlega könnun á því hverjir myndu hafa hug á að mæta svo að unnt sé að hefja skipulagningu og form (m.a. til að ákvarða stærð húsakynna ef ske kynni að það mæti gestir sem eru ekki Glúmur) og bið þá sem hafa hug á að láta sjá sig að rita svör sín á þennan þráð.
Gera má ráð fyrir að einhver kostnaður verði við svona veisluhöld og hann reiknast að sjálfsögðu bara í hlutfalli við fjölda gesta svo að það er mikilvægt að við vitum hvað það mæta margir.
Að lokum skal taka fram að undirbúningur er algjörlega á frumstigi og er þessi tilkynning birt með fyrirvara um ákvörðun ritstjórnar um aðkomu sína að téðri árshátíð...
Vinsamlegast athugið að þessi þráður er eingöngu til skráningar, öll almenn umræða um árshátíðina fer fram á hinum þræðinum...
Ég þarf kannski ekki að taka það fram, en ég ætla mér að mæta, ekki bara skipuleggja.
Ég líka. Stekkur hæð sína
Riddarinn er að sjálfsögðu með í skemmtinefnd. (Hrikalega vel tengdur til allra átta)
Flott. Þú ert góður staðareddari. Ljómar upp
Var einhver að efast um að ég mundi mæta?
Búinn að setja stjóra krossa á öll dagatöl sem finnast á heimilinu.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer hyggjumst mæta (nema óvinum ríkisins takist á einhvern ótrúlegan hátt að hindra það).
Æskilegt er að þar sem hátíðin verður haldin verði aðstaða til tímabundinnar geymslu á geislavirku plútóníum.
Þetta er árshátíð í raunheimum ef það er það sem þú meinar.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer hyggjumst mæta (nema óvinum ríkisins takist á einhvern ótrúlegan hátt að hindra það).
Æskilegt er að þar sem hátíðin verður haldin verði aðstaða til tímabundinnar geymslu á geislavirku plútóníum.
Að sjálfsögðu verða gerðar allar viðeigandi öryggisráðstafanir í samræmi við óskir frá forsetaembættinu!
Ég mæti ef svo skemmtilega vildi til að ég væri í Reykjavík á þessum tíma.
Ég ætla mér að mæta. Frestar öllum fyriráætlunum um heimsenda til 12. dags nóvembermánaðar Þá þurfum við ekki að hafa neinar áhyggjur af þynnku! Ljómar upp
Ég myndi mjög svo hugsanlega mæta.
Ég mæti ef Megas mætir.
Það tilkynnist hér með opinberlega að ég er í fílu út í ykkur fyrir að halda ekki þessa árshátíð 16 des.
Strunsar út af þræðinum og skellir á eftir sér, fast!
Það er líklegra en ekki að ég mæti. [s]Stekkur hæð sína[/s]
Ég er ekki upptekin þennan dag, svo ég viti allavega... Ljómar upp Við Ívar mætum bæði, með fyrirvara um barna- og kattarpössun.