Er hagyrðingamót frammundan?
Væri þetta þá ekki fyrirpartý?
Kominn finnst mér tími til
taki menn sig saman.
Eina kvöldstund um það bil
yrk'og hafi gaman.
Hagyrðingamót annað kvöld... ef það fást fleiri þáttakendur en fimm (egó og aukaegó hafa bara eitt atkvæði samtals).
Hagyrðingamót annað kvöld... ef það fást fleiri þáttakendur en fimm (egó og aukaegó hafa bara eitt atkvæði samtals).
Í kvöld? kemst ekki nema kannski seint.
Það vill svo merkilega til að ég kemst til móts í kvöld, & hyggst mæta ef af verður – en hvar eru yrkisefnin ?
Í kvöld verður áfengi haft um hönd, en halda mér munu samt engin bönd ef hagorða mótaröð halda skal. Þá hef ég í rauninni ekkert val og mæti því galvaskur - gleðin mun skína og gráa hún lýsir upp tilveru mína. Ég lýsi því yfir - ég mæti! Ég mæti, ef mér verður útvegað nógu gott sæti.
Það er nokkuð líklegt að ég geti mætt í kvöld, ef af verður.
Kannski.
Hvað segið þið um hagyrðingamót í síðustu viku ágúst eða byrjun september?
Hvað myndu margir mæta t.d. miðvikudagskvöldið 31. ágúst milli klukkan 21:00 og 23:00?
Ég verð í Rússlandi, efalaust netlaus. Kem aftur 3. september.
Ég kemst, en lýst vel á að bíða eftir Billa.
Bíðum eftir Billa... einhverjar tillögur að dagsetningu eftir 3.sept?
Reikna reyndar með að flestir mætir hagyrðingar verði á landsmóti hagyrðinga að Stykkishólmi þann 3. sept, þannig að eftir 4. sept ætti að henta flestum... eða hvað?
Ég get svo svarið að það er Internet í Rússlandi.
En kannski ekki í Adventure club sem er 100 km fyrir utan Moskvu, og í Kirilia óbyggðunum.
Hvernig settu þeir þá þessar myndir á netið ef það er netlaust þarna? Klórar sér í höfðinu
Og hvar er Kirilia?
Með hugskeytum.
Nálægt Finnlandi?