Enginn fléttar skegg sitt betur en Huxi.
Hún Regína er einstaklega geðfeld sál hún ætti það til að gefa aur í bauk handa loðnum sem væru einmanna og eineltar . og stofna sjóð fyrir framsóknarmenn án framtíðar .
Miðviku Dagur er nýr og ferskur.
Þarfagreinir er sú grein Gestapó sem við þörfnumst öll...
Sundlaugur minn er unaðslega fagur og hefur svo fallega nærveru, svo er hann laglegur, hagmæltur og örugglega góður í dönsku, hann spilar á flestöll hljóðfæri og á bara prúð og vel upp alin börn, svo hefur hann óaðfinnanlegan smekk.Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Hún Dula er einstakur mannþekkjari.Ljómar upp
Sundlaugur hefur fallega beinabyggingu og vel snyrt nefhár.
Don De Vito er svo svalur að nærstaddir setja á sig húfu, trefil og vettlinga.
Regína er svo kynþokkafull að jafnvel hinir aumustu karlfauskar finna til karlmennsku sinnar verði þeim hugsað til hennar
Karlmennska Vatne er nú ekkert slorLjómar upp
Dula er draumadís allra alvöru karlmanna...
Sundlaugur segir skemmtilegar sögur frá Ýsufirði.
Grýta er höfðingi heim að sækja og vill hvers manns vanda leysa...
Sundlaugur er gull af manni og kann að baka fínar pönnukökur.
Grágrímur er skipulagður og leysir verk sín vel af hendi.
Einu sinni hitti ég Línberg. Ég væri til í að hitta Línberg aftur.
Kargur gæti komið búrekstrinum á Brúarreykjum í gott lag ef hann hefði bara tíma.
Upprifinn er eðalmenni og stórbóndi.