Algera spillingu auðvitað kýs,
annað er barasta galið.
Við sannleika og réttlæti hugur mér hrýs,
hér skyldi allt vera falið.
Soros tók upp síma og hló.
Setti dóp í bjórinn
Úr Sigmunds vinum vond orð dró.
Nú vælir úlfakórinn.
Albert tína óðar vildi
allar spjarir af Braga.
Bragi innti að allt það skyldi
innan regla og laga,
Seljum bankana Bjöggunum
og biðjum Ólaf Ólafsson
að koma okkur úr kröggunum
og kaupa líka - þá er von.
Birgir! þú sveikst frá Sigmundi.
Synd þín er mikil og stór.
Þú líkist helzt munnkristnum mannhundi
sem mangar með þýfi og hór.
Muninn á þér fiskari og fiskkari
finnst víst þingurunum lítill vera:
Bæði munir á mútugjafa sjófari.
Því mennskuna þeir burtu reyna að skera.