Hér eru fimm vísbendingar í fjórum línum:
Þröngur betri en breiður er.
Bannsettur, þú kálar mér.
Reiknar magn og ruggar sér.
Rædd er einnig virðing hér.
Þetta er nú einfalt.
Þröngur betri en breiður er. Vegurinn til hjálpræðis, himna, eða hvað það nú var aftur..
Bannsettur, þú kálar mér. Vegur = drepur.
Reiknar magn og ruggar sér. Vigtar og vegur salt.
Rædd er einnig virðing hér. Vegur og virðing.
Já, líklega var þetta einfalt. En þú ert líka bullandi vanhæf sem drolla mín. Glottir eins og fífl
Hvað meinarðu? Klikka ég á að gera vísnagátur sem þú getur ekki leyst?
Nei ég var nú meira bara að meina hvort þetta samand sé viðeigandi nú þegar við höfum komist að því að í raunheimum ert þú móðir mín.
Bíddu, ég var ekki búin að frétta það!
Nei bara bull, en mér fannst það svo ógurlega fyndið.
Jæja, þetta er þráður fyrir vísnagátur. Ég dembi inn einni fáránlega léttri, svona bara til gamans:
Næstbestur í bridds er sá.
Brúðardjásni skal hann granda.
Einar gistir einn, má sjá.
Yfirpervert Norðurlanda.
Nei bara bull, en mér fannst það svo ógurlega fyndið.
Jæja, þetta er þráður fyrir vísnagátur. Ég dembi inn einni fáránlega léttri, svona bara til gamans:
Næstbestur í bridds er sá. Kóngur er lægri en ás.
Brúðardjásni skal hann granda. einhver kóngur sem ég man ekki eftir.
Einar gistir einn, má sjá. á skákborði er kóngur á Einari einum.
Yfirpervert Norðurlanda. Svíakóngur.
Einhver með kóng nr. 2?
Einhver með kóng nr. 2?
Já, þú. Væntanlega gengur þú út frá þeirri alkunnu staðreynd í vísunni að brúðir séu óspjallaðar.
Skrítið að Upprifinn skuli ekki hafa verið með þetta.
Að sjálfsögðu geng ég út frá því. Annað væri dónaskapur. Upprifinn skilur það ekki.
Hvarflaði að mér en í fyrsta lagi held ég að óspjallaðar meyjar séu sjaldgæfar brúðir og svo vildi ég ekki trúa að hlebbi færi að tala um þannig kóng.Glottir eins og fífl
Bíður spenntur eftir vísnagátu
Þá dúndrum við í nýja gátu:
Ýmsra í tranti er.
Eymdin sem kratar hata.
Hér eru hreiður ger.
Höfuðfat glataðra rata.
Meðan við bíðum, þá er hér ein auðveld. Galli við þessa vísu er að hún nær ekki alveg utan um sjálfa sig og á einum stað þarf að bæta við i til að gátan falli ekki um koll.
Barnið hans var heljargljúpt.
Hreyfist oftast bulli við.
Syndir flöt um sullið djúpt.
Síðast skaltu kalla á smið.
.... of seinn, en það er kannski í lagi að hafa tvær gátur í gangi.
Held ég sé með svar við gátunni hans hlebba - sjáum til.
Fínt að hafa tvær. Hef ekki hugmynd um hvað þú spyrð um enda gengum mér mun verr að leysa gátur en að semja þær.