Kálið hefur kynslóðirnar alið.
Það að ekki þakka pent
þykir vera galið.
Galar haninn glaður er rís sólin.
Karlinn líka kátur er.
Kannar vinnutólin
Vinnutólin verkin gera betri.
Eg þau nota afar vel
sem eftir lifir vetri.
Vetur kemur verður harður núna.
Hallæri mun herja þá.
Höldum fast í trúna.
Trúna skaltu takmarka við flokkinn.
Hann mun auka og efla þig
þá andinn dýpst er sokkinn.
Sokkinn fen í sýnist mér vor stjórnin.
Þá ég minni mat ég ét.
Mín það verður fórnin.
Fórnin sem ég færði mínum guði
ekkert gaf í aðra hönd
ég enn er djúpt í puði.
Puðið meira piltar hörð er raunin.
Hugsið um að hagnist þjóð.
Hirðið ekki um launin.
Launin hef ég lagt öll inn í banka,
síðan tekið aftur út
því að mér skuldum sanka.
Sanka að mér úr sorpi ýmsu drasli.
Síðan reyni að selja það.
Svona er líf í basli.