— GESTAPÓ —
Vikhendukeðja
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 16, 17, 18 ... 26, 27, 28  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 7/8/11 00:59

Spilla ekki spenar fyrir kúnum.
Mjólkurdreytil máttu fá
að matartíma búnum.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 9/8/11 23:42

Búnum leggja bændur næsta vetur.
Þegar ræður EES
enginn búið getur.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 9/8/11 23:48

Geta margt sem megna afl að virkja.
Jah, nema kannski kveifar þær
sem klíkur vilja styrkja.

To live outside the law, you must be honest.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 10/8/11 00:46

Styrkja vil ég stöðumælaverði.
Með Tazer byssu og táragas
þeir tækla brotamerði.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 10/8/11 09:42

Merðina ég meiða vil og lemja.
Bíta af hið breiða skott
berja þá og kremja.

‹Kannske of ofbeldisfullt?›

To live outside the law, you must be honest.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 10/8/11 12:29

Kremja vil ég vínberin í bala.
Traðka á þeim tánum á,
tárið svo ég fala.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 10/8/11 12:45

Fala vil ég vínin góðu þýsku,
með eikarkeim og öðru því
sem er nú mest í tísku.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 10/8/11 15:30

Tískubólutildurrófur raupa
um eðalföt á uppsprengdu
og eftir þeim svo hlaupa.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 10/8/11 20:17

Hlaupabólan hressir menn og kætir.
Önugheit og ergelsi
algerlega bætir.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 11/8/11 10:36

Bætir geðið bótasjóður tryggur
ef þú færð hann fyrir slikk
þá flögugull þú tyggur.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 11/8/11 13:14

Tyggigúmí trauðla japla séður.
Heitir það í heimasveit
hrútajórturleður.

To live outside the law, you must be honest.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 11/8/11 13:36

Leðurdvergar leika sér að kasti.
Renna þeir þá rassi á
þó risarnir það lasti.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 11/8/11 16:07

Lastabæli liggur austan heiðar.
Oft af heilum hug ég fer
á höfuðleðursveiðar.

To live outside the law, you must be honest.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 11/8/11 16:54

Veiðar eru vandamál í Kína.
Einkanlega á ísbjörnum
sem aldrey þar sig sína.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 12/8/11 10:42

Sína mín er svakalega liðug,
spíkat bæði og splitt hún kann,
spengileg og sniðug.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 12/8/11 11:12

Sniðugt er að snoða koll um sumur,
hárlubbann þó hafa skalt
ef hitinn skaðar frumur.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 9/12/11 18:15

Frumur náðu' að frjógva eggin bæði.
Kýrin tveimur kálfum ber.
Kálfasteik er æði.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 9/12/11 21:46

Æði margir ætla heim um jólin,
opna pakka, eta mat,
æða svo í bólin.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
        1, 2, 3 ... 16, 17, 18 ... 26, 27, 28  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: