Neitar mér ei nokkur snót um blíðu;
sækist eftir samræðum
í samhengi mjög víðu.
Víðu gati veldur möttulgosið.
Upp sér þrengir aska fín
sem áður vatn var frosið.
Frosið hafa fastar eigur vinar.
Höndin bláa helköld ei
hraðfryst tak sitt linar.
Linar þrautir legubekkur mjúkur,
einkum þá þú á hann leggst
í öllum vöðvum sjúkur.
Sjúkur er í sódavatn og klaka
vel það oft ef vænum með
viskíteyg má slaka.
Slaka hníf í slíður þegar náttar.
Nýttist vel í niðurskurð
nettan, meiriháttar.
Meiriháttar mergjað flipp er stundum
þegar röflar ruglað lið
á ríkisstjórnarfundum.
Fundi marga Finnur hefur setið
þar er mikið röflað rætt
og rausnarlega étið.
Étið hef ég Jesúm - og hef drukkið
æða kappans áfengt blóð -
enda fyrir sukkið.
Betra svona:
Fundi marga Finnur hefur setið
þar er mikið röflað, rætt
og rausnarlega étið.
Sukkið hef sokkið í á kvöldin.
Súkkulaði sett í belg,
svolgrað bak við tjöldin.
Tjöldin eru uppsett niðrá plani.
Þangað beygir -bíddu við-
bíll á harðaspani!
Harðaspani held á verði flokkar
þegar Gnarrinn gefur í
og gegnum kjördag rokkar.
Rokkar Gnarr og gefur okkur síðar
með strætisvagni farið frá
Fellum niðrí Hlíðar.
Hlíðar fellsins hrími settar
þar að ofar klungur klaki
kólgubakki og drýfur þéttar.
Hlíðar fellsins hrími eru settar
þar að ofar klakakró
og kólgudrýfur léttar.
Léttari og liprari við verðum
þegar æfum okkur vel,
ólina svo herðum.
Herðum tökin, hendur kreppum nettar.
Reipi vefjum reiða menn
og reyrum miklu þéttar.
Þéttur er ég þrusuoft á kanti
eins og djöfull enda þótt
í mig maltið vanti.