— GESTAPÓ —
Braghendukeðja
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... , 45, 46, 47  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 8/9/15 08:05

Myrra notast núna til að nudda strengi
bogans svo að fiðlan fengi
fagran hljóm sem entist lengi.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 8/9/15 09:47

Lengi hef ég leitað hér að ljóðstöfunum
því eftir þeim við öll hér gönum
á ekki nógu háum plönum.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 8/9/15 15:19

Planað hef ég plott og kúpp með prettum smá í;
meirihluta mun ég þá í
mænuskaðahópnum ná í.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 8/9/15 16:53

Íbenholt er ansi harður eðalviður.
Með fílabeini fer hann niður,
fæst þá ljúfur nótnakliður.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Heimskautafroskur 5/2/16 16:48

Kliður berst frá klósettinu kvennamegin.
Einhver segist ansi slegin,
önnur bara nokkuð fegin.

vér kvökum og þökkum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 5/2/16 22:32

Feginn vildi fylgja þér að ferðalokum,
heilsa þér með hláturrokum,
heim svo reiða vit í pokum.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Heimskautafroskur 15/2/16 21:33

Pokarottupottréttinn ég pipra mikið,
brytja mörinn, bræði spikið,
af beinmergnum er fólk ei svikið.

vér kvökum og þökkum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
blóðugt 11/11/16 12:55

Svik og prettir! Svívirða og svínslegt! Hættu!
Með sápuvatni vit þín vættu,
vinsamlegast að þér gættu!

Hjarta skal mér Högna í hendi liggja blóðugt, ór brjósti skorit balldriða saxi slíðrbeitu syni þjóðans.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 11/11/16 23:38

Gættu þín og gáðu að þér, góða kona.
Láttu ekki alltaf svona.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
blóðugt 23/11/16 13:51

hlewagastiR mælti:

Gættu þín og gáðu að þér, góða kona.
Láttu ekki alltaf svona.

Hlebbi... þetta er braghendukeðja, ekki afhendingarkeðja.

Hjarta skal mér Högna í hendi liggja blóðugt, ór brjósti skorit balldriða saxi slíðrbeitu syni þjóðans.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 16/4/18 16:56

blóðugt mælti:

hlewagastiR mælti:

Gættu þín og gáðu að þér, góða kona.
Láttu ekki alltaf svona.

Hlebbi... þetta er braghendukeðja, ekki afhendingarkeðja.

Aldrei skaltu hætta að vona.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 17/4/18 12:14

Vona ég að vísunni hér vel sé tekið,
af mér sliðruorðið rekið,
og að dugi frekar blekið.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Heimskautafroskur 7/5/18 15:06

Blekið sem ég blandað hef úr blóði og tárum
í klessum vildi storkna stórum.
Við stóðum bara upp og fórum.

vér kvökum og þökkum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 8/5/18 10:54

Í fórum mínum finn ég ekki fjaðrastafinn
sem að áður sá um skrifin,
sem nú eru tætt og rifin.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 17/10/18 23:04

Rifnar buxur, buran götótt, blóm við eyra.
Skálds sem vill oss fögnuð færa,
fegurð ljúfa, og gleði tæra.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 4/12/18 08:44

Tærð er gleðin, trosnuð viskan, trúin farin.
Samviskan er sundurmarin
síðan eftir Klausturbarinn.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 4/12/18 12:13

Klausturbarinn Karl nú grenjar kvennatalið.
Ólafs, sem hans, orðavalið
ýmsum þótti í flokknum galið.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 10/5/22 17:37

Gala reyndi galdur minn, en gekk það illa.
Ætla ek þinni auðnu að spilla;
ævi þína af beizkju fylla.

        1, 2, 3 ... , 45, 46, 47  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: