Æi þið vitið...
Rám og skítug röddin veik, já rautt er nefið
eftir fjandans eldhúsbréfið.
Ekkert læknar bölvað kvefið.
Baksneidd braghenda:
Gríðar oft það gerist víst hjá gölnum ösnum:
tuddann er þeir tjóðra' í básnum
tíðum festa' í rennilásnum.
Úps, átti ég að byrja með kvefið?
Úps, átti ég að byrja með kvefið?
Jább. Keðja.
Kvefið margan kvelur mann á köldum vetri.
Heilsan verður varla betri
vistist hann hjá Lykla-Pétri.
Og nú má blóðugt varla blóði halda!
Farinn á hagyrðingamótið.
Það JC fólk sem ég hef kynnst er kolruglað með víni og lausgyrt með eindæmum...
Ossilegur englabossi erann Dabbi.
Sensitívur, klár og krabbi!
Karlinn verður góður pabbi.
Rokkum við á ruggustólum, ruglukollar.
Meyjastóð og kræfir kallar
kætast þegar degi hallar.
Allar stundir stendur hann og streðar mikið.
Elskar kauði augnablikið
er útum prikið leitar bikið.
Biksvartsýnn og boginn, einnig bældur nokkuð,
þá birtist hendan braga þokkuð,
bara hress og ansi rokkuð.
Braghendan er svo skemmtileg..xT
Rokkandi á rauðum sokkum Reynir dansar.
Í gríð og erg á gólfi skransar
glæsilega. Aldrei stansar.
Stanslaust ríkir stuðið suðrí Straumsvíkinni.
Opið hús í álsmiðjunni
allri hentar fjölskyldunni.
Fjölskyldunni farnast best að forðast álið,
fúlt er loft þar brennur bálið.
Börnin hósta, missa málið.
Málið þykir mér að vera mestur hesta!
Bera kónga bæði' og presta
á baki mínu, helst sem flesta.
Flestir vilja ferðast víða, flengríðandi.
Það er auðvelt, enginn vandi
- ef þú sért [sic] í netsambandi.
Nígerískir netpóst sendu, nú skalt vakna
millifærslu mjög þeir sakna,
mótþróinn nú er að slakna.
Sannlega ég segi yður: Svon´ er lífið;
argaþrasið, ógnarkífið.
Ekkert hægt að gera því við.
Svei mér ef ég hef nokkurn tímann eytt jafnmiklum tíma í eitthvað jafnheimskulegt og þetta.
Viðartrefjavefjarefnisvafningsþráðar-
veiðisnöruvillibráðar-
vöðvaskurðarlærlingssnáðar
Á næsta braghenda þá að byrja á orðinu Viðartrefjavefjarefnisvafningsþráðarveiðisnöruvillibráðarvöðvaskurðarlærlingssnáðar?