Já hann elsku Vímus fær ofurölvaðar og efnabættar kveðjur í tilefni rafmælisins.Ljómar upp
Vímus okkar, vinur kær,
varla sést á Lútsins grundum -
Gestapóar glatast stundum.
Honum færum hrúgur dóps,
heillakarli vænum þökkum -
mokum í hann morfínpökkum.
Mogadon og meskalín,
mikið viljum sjá'ann aftur -
vart er horfinn karlsins kraftur.
Þegar karlinn kíkir inn
kætast Póar allir saman -
mikið þætti mér það gaman.
Að lokum vil ég færa meistaranum sjálfum þetta - og afsaka í leiðinni leirburðinn:
Vímus fær saknaðarkveðjur... Meistari, þig vantar!
Kempan hann Vímus fær þær allra útfjólubláustu kveðjur sem um getur í sögu mannkyns og jafnvel lengur.
Dannibéééééééééééé!
Vímus fær saknaðar rafmæliskveðjur hvar sem hann er staddur.
Ég sendi Vímusi rafmælis- og saknaðarkveðjur. Vonandi lætur kallinn sjá sig sem fyrst.
Vímus fær saknaðarkveðjur á rafmælisdaginn, og knús.
Meistari Vímus fær rafmælis og saknaðarkveðjur. sendir Vímusi sönnunargögnin úr stóra fíkniefnamálinu
Vímus fengi fínustu kveðjur ef hann væri ekki horfinn af yfirborði jarðar, þetta er að verða dularfyllara en Geirfinnsmálið.
Vímuefnaráðgjafi Gestapó, sjálfur Vímus fær rafmæliskveðjur frá galdrahyskinu.
Eftirtaldir fá mínar bestu rafmælisóskir:
Sundlaugur Vatne
Ragnar stórbóndi á Brimslæk
Hóras
Fergesji
Dúlli litli og
Bob
Sexföld skál! xT xT xT xT xT xT
Vá hvað það eiga margir rafmæli í dag!
En..
Sundlaugur Vatne
Hóras
Fergesji
Fá rafmæliskveðjur frá mér. ♪♪
Og svo fær Vímus rafmæliskveðjur líka. Aðeins of seint samt.
Sundlaugur, Hóras og Fergesji fá rafmæliskveðjur Kargsbúsins. færir rafmælisbörnunum jólabrennivín, jólaákavíti og jólatimburmenn
Já, það eru margir góðir sem eiga rafmæli núna.
Sundlaugur, Hóras, Fergesji og Bob fá kærar kveðjur.
Herra Sleif fær hins vegar kæstar kveðjur.
Þetta er aldeilis vinsæll rafmælisdagur.
Sundlaugur
Hóras
Fergesji
Dúlli litli
og Bob
fá allir rafmæliskveðju frá mér.
Til hamingju með rafmælin, allir saman!
Gefur þeim öllum blút eins og þeir geta í sig látið.
Sundlaugur, Hóras, Fergesji og Bob fá glóandi galdrakveðjur á rafmælisdaginn.
Ljómar upp
Ég var byrjaður að rita gríðarstórt innlegg í word með rafmælisóskum til Fergesji. En tölvan mín hrundi og það er allt horfið núna.
Til hamingju allir.
Sundlaugur Vatne og Ragnar á Brimslæk fá báðir allra bestu kveðjur í Ýsufjörð.
Hóras og Fergesji fá ekki síðri kveðjur, og Bob. Langt síðan hann hefur sést.