Meðan ég beið eftir svari frá Rasspabba rakst Ívar Sívertsen á villu við vistun félagsrita, og ég ákvað því að berja saman nýja útgáfu.
Hana má ná í hér, eða þá bara í gegnum viðbótaumsýslukefi Eldrefsins.
NÖRDAR!
Hleypur bak við horn og felur sig...
Inn, út, inn, út þar til það er orðið gott. Minnir mig á... æji nei gleymum því. Gleymir því
Pólskar kynlífsleiðbeiningar: Inn-út, endurtakist ef þarf.
Hvernig er það, er engin uppfærsla væntanleg í náinni framtíð?
Ég er að reyna að fá þetta til að virka á Firefox/2.0.0.2 (Ubuntu-edgy), gengur ekki of vel í augnablikinu.
Hvað er til ráða?
Það virðist vera nóg að kvarta smá á þessum þræði, þá hrekkur þetta í gang Verður alveg ljómandi forviða
Það var nú lítið.
Það ætlar að loða við þessa viðbót að stundum er erfitt eða ómögulegt að koma henni inn. Veit ekki alveg hvað ég get gert við því, því miður.
Hvað gerir þessi viðbót, hver er tilgangur hennar? Annars prófaði ég eldrefinn, aftur, í fyrradag. Var dugleg og notaði hann í marga klukkutíma. En mér fellur hann bara alls ekki, hann er lengi að birta allt, fliparnir virka ekki. Þetta hlýtur að vera meingallað eintak sem ég er með. Hef aldrei heyrt um að fliparnir virki ekki.
Klórar sér í höfðinu
Ekki ég heldur. Það er stórskrítið. Notarðu CTRL+T til að búa til nýja flipa?
Annars þá býður þessi viðbót mín upp á að vista allt efni af Baggalúti; þræði, félagsrit og einkapósta, sem og að búa til eigin sviðslýsingar sem birtast í listanum.
Athyglisvert. Vista allt efni á Baggalút.... þá til afnetjaðar notkunar? Sniðugt með sviðslýsingarnar. Prófa þetta næst þegar ég prófa eldrefinn.
[...] hann er lengi að birta allt [...] [/s]
Þolinmæði er dyggð.
Ég var að hugsa sem svo að það væri frekar sniðugt að dusta rykið af Eldrefsviðbótinni og gera henni kleift að vista innlegg úr mafíuþráðum á þann hátt sem hentar mafíuspilurum.
Það er ekki slæm hugmynd. Efast ekki um að hvernig svo sem þú útfærir það þá mun það nýtast kvæðamönnunum líka.
Brilljant hugmynd... virkar þessi eldrefsviðbót með Internet Explorer?
Flissar laumulega
Mjer er spurn; notar einhver Internet Explorer (Veraldarvefskönnuðinn)
Æji er þetta stemmningin núna... er eftirhermuvikan byrjuð... Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Æji er þetta stemmningin núna... er eftirhermuvikan byrjuð... Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Ég fékk um daginn nokkra einkapósta frá Skrabba skrumara. Tóm helvítis leiðindi.