Gefðu mér eina góða ástæðu fyrir því að hafa ekki mætt í vinnuna í morgun.
Svipaður Sjóðríki seiðkarli nema hvorki né.
Geturðu lýst Enteri fyrir mér?
Æ, það var þarna... nei, ég veit það ekki.
Manstu hvar árshátíðin var haldin eða ert þú þjökuð af blútómynni.
Sá rauði, já sá rauði það var örugglega ekki hann.
Hvaða fána varst þú að veifa þarna niðri í bæ á laugardaginn?
Nei, séra Jón.
Gerðist svo eitthvað merkilegt í rútinn á leið heim frá árshátíðinni?
Ég seldi væmna smásögu til birtingar í Vikunni.
Af hverju rak pabbi þinn þig að heiman?
Hvernig í óskupunum á ég að vita það?
Hvað heitir mamma þín?
Eins og mig hefur ætið grunað. Geitasmjör.
Hver eru takmörk þín við ostaskerun?
Hlykkjótt á köflum.
Hvernig er leiðin að alsælu eilífðarinnar?
Ó, nei, þú kemst nú ekki upp með að hlaupa frá þessu.
Ha, er þér ekki sama þótt ég skrái mig í Reykjavíkurmaraþonið.
Skotar eru svo skemmtilegir.
Af hverju áttu bara skoska vini á Fésbókinni?
Hárlengingar og þverslaufa.
Hvað í greflinum er þetta sem þú settir á skottið á mér?
Hann prófaði að synda í því.
Hvernig áttaði Sundlaugur sig á því að vatnið í sundlauginni væri blautt?
Það var einfalt, ég klappaði bara saman lófunum og taldi hægt upp að fjörutíuþúsund í huganum, en passaði að sleppa öllum prímtölum.
Hvernig fórstu að því að halda þér vakandi yfir síðasta Leiðarljósi?
Reddað.
Hvernig gekk afhommunin á þér hjá Gunnari í Krossinum?
Það eru bara eðlileg afföll.
Hvað finnst þér um ástandið, nú þegar útlit er fyrir að fjöldi fyrirtækja sigli í gjaldþrot, bankarnir eru komnir á hausinn og stór hluti Íslendinga er búinn að tapa glórunni?
Æ, hún vinnur sem hjúkka á bráðamóttökunni.
Bíddu, hver er þetta sem er að naglalakka táneglurnar þínar?
Fagur fiskur í sjó.