Þú ert alveg eins og blóm,
sem áður skalf í grýttri jörð
og hægt ég bærði heitum róm
og heim svo færði í frjóan svörð.
Gulur köttur gaf af sér
góða ullarlagða,
því gat ég peysu prjónað mér
prýðilega sagða.
Það er fallegt að treysta og trúa,
en trúgirnin hættuleg er.
Til valda sig vanhæfir ljúga
og vitum við nokk hvernig fer.
Því ríkrastjórn Íslands sér ætlar
að afnema ranglætið strax,
og vel úr þeim trúgjarna vætlar;
en vinirnir komast í lax.
Þó þér hlotnist ekki allt
eins og heimtar jólavenja,
varast samt þá villu skalt
væmulega að jólagrenja.
Ólafi vorum æðsta manni,
ég afmæliskveðju færi.
Þú hugsjónamaðurinn heili og sanni,
ég heiðra þig og mæri!
Fer um veröld forseti vor,
frægja vill hann land sitt frítt.
Hefur sjóli þrek og þor,
þegar tala verður strítt.
Íslenzka þjóðin hún gladdist í gær,
í galsa hún söng og kvað,
því leiðin frá skuldum til frelsis varð fær;
framsókn hún sá um það.
Menn flykkust á strætin og fagnaðar óp
flugu um ströndu og dal:
Ó! Sigmundur Davíð er sigur vorn skóp.
Vér signum þann fríða hal.
Fólkið það dansaði rúmbu og rokk
og rælana og þjóðdansa sté.
Já! svona er að eiga sér framsóknarflokk
og foringjann Sigmund Dé.
Fordómafiskerí.
Drullupolladrottningar
draga netin Framsóknar,
á fiskibátnum Fordómar
fá þær upp í hlutinn
en neina sé ég negluna við skutinn.
Nú er úti vonsku veður
vetrartíð með frosti.
Slóð að bænum Tóta treður
traust að minnsta kosti:
Kominn inn í bæjinn,brátt
börnin henni fagna,
Öll þau eru sæl en sátt
Siggi,Jón og Ragna:
Óli á Byggðu-Bóli
var bölvaður ekkisens fóli.
En það er alltannar Óli
sem ekur um þarna á hjóli.
Sumar komu fagna flestir
Fyrr var oft í kotum glatt.
Oft þar komu góðir gestir
gangandi með pípuhatt.
Þó Rúnar á Völlum sé rasisti
og rogginn af fortíð sem nasisti,
þó segist hann hvorki
neinn Satan með forki
né framsóknarmaður og fasisti.
Hví ætli að landið ljómi
og lýðir syngi gleðibrag?
Því Ólafur Ragnar ættlandssómi
á afmæli í dag!
Innan um snjalla og snögga
snarráða kappa og glögga
er bjáninn hann Biggi (sem ég man ekki hvað er kallaður).
Nú klósetthátið höldum vér,
og hrein vor klósett skína.
Það úrgang vorn á burtu ber.
Vér blessum tækið fína
Fór að verzla á föstudaginn blakka.
Frábær verð og mikið er ég glaður.
Nú hef ég efni fínt í fjölda gjafa pakka
og fínnst að ég sé Bandaríkjamaður.