Krambúleraðir altarisdrengir átu klístraðar krembollur klerksins.
Leigubílalegir bíleleigubílar biluðu bölvaðir barasta allir í senn.
Ferðu í feðraorlof?
Mamma gamnaði manna nammimanni
Hér er lítið að gerast.... fáum einn í viðbót:
- - -
Sí & æ síga síur í CIA
Gæðhandbókargerðarmaður gaddavírsverksmiðunnar á Reyðarfirði.
Ljómandi.
- - -
Fáum nú einn all-erfiðan :
Fremur merkur hermiklerkur kemur & kremur Kermit
Ég veit ekki með aðra, en mér þykir þetta býsna erfitt í framburði –einkum þegar öl er haft um hönd, líktog nú . . . .
Snilldarlegt.
Stjórnvaldsskipaður stýrihópur samkynhneigðra Strandamanna í stjórnunarstöðum ríkisstofnanna innan Bandalags háskólamentaðra starfsmanna.
Glæsilegt.
Snotra smánar Snata er hún smalar snúin snarrótartúnin.
Þessi var lúmskt strembinn. Ljómar upp
- - -
Fljóðið hún Fjóla hefur löngum verið baldin & erfið viðureignar...
Frjóa fljóðið Fjóla fór á fjóra . . . & fróaði Fróða
Sjó Ari sjóari sótti en sjóveikur sjóarinn Ari sjóaðist seint.