Berki er merkur erkiklerkur
og þetta átti náttúrulega að vera BREKI... og þannig verður tungubrjóturinn svona:
Breki er merkur erkiklerkur með verk...
Það breytir auðvitað töluverðu. Annars hefði þetta verið of mikil endurtekning á samskonar hljóði.
En ég segi:
Breki Brekkan er frekar merkur erkiklerkur.
Verk Breka Brekkan eru þó ekki merk erkiklerksverk.
Villi vill snilli Ella milli villna
Kalla kallandi kallar Kalla Kalla kalla-Kalla, kall-Kalla, kall-kalla-Kalla eða Kalla ? (þetta er e.t.v. að verða full mikið í ætt við svefngalsa) Geispar og verður var við einkenni næturóþols
pass!
ég man [...]
Ánægjulegt að sjá þig, litlanorn.
Þarna hefur þó smávægilegur ruglingur átt sér stað hjá þér - víxlheklaða silkilyklahylkið er reyndar (þvímiður) ekki úr mínum hugarranni runnið. Ef ég man rétt er höfundurinn hávaxinn náungi, einn af mínum ágætustu vinum.
Hmm... það var einhver mjög svo hávaxinn fýr sem þuldi þetta fyrir mig: "'Úlfar úrvals varúlfur fann víxlheklað silkilyklahylki á meðan afi fór afundinn á AA fundinn."
Kannski var þetta sami hávaxni vinurinn.
Annars er mitt uppáhald: Það fer að verða verra ferðaveðrið á ferð feðranna.
Setur fram tvo enska tungbrjóta
I wish to wish the wish you wish to wish, but if you wish the wish the witch wishes, I won't wish the wish you wish to wish.
Stupid superstition!
Hafnarfjörður nyrðri.
(Já í alvöru, prófið að segja þetta oft og hratt)
Hrökklast aftur á bak og hrasar við Eru til fleiri Hafnarfirðir?
Hafnarfjörður nyrðri, syðri og neðri?
Það má vel vera að þar sé Hafnafjörður, en ég efast um að þar sé Hafnarfjörður.
Tvennt ólíkt, sjáðu til.
Ég man ekki eftir neinum Hafna(r)firði hérna.
Bévítans hermikrákur.
Veifar fingri
Það er bara einn Hafnarfjörður! Ríkis-Hafnarfjörðurinn!
Hver hér sér þveran hver?
Hver hér sér þveran hver?
Annars er mitt uppáhald: Það fer að verða verra ferðaveðrið á ferð feðranna.
Nú erum við að tala saman. Þú ert að lesa mig.