Jæja. Fær sér í nefið
Spurt er um fræga meri. Hún týndist ung. Maður einn keypti vonina í henni og fann hana síðar. Hún varð allra hrossa skjótust. Hún drapst í feni og heitir staðurinn enn eftir henni. Hvaða meri skyldi þetta nú hafa verið?
Já, gott ef ekki! Hún hét held ég Húsa-Fluga, afþví að hún var upphaflega frá Húsum í Ásahreppi, og þaðan týndist hún.
Væni Grétar með þetta á hreinu. Þetta var að sjálfsögðu Fluga. Flugumýri heitir eftir henni. Býður Væna Grétari tóbaxkorn í nasir xT
Þiggur með þökkum
Í hvaða skáldsögu kemur lyftuvörðurinn Maurice við sögu?
Njáls sögu.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Rétt hjá Hlebba!
Reyndar ekki, rétt svar er ekki komið
Er hægt að fá útskýringu fyrir ólesna?
Njáls sögu.
Það er varla hægt að toppa svona gisk. Blótar herfilega og rífur hár sitt
Og Bakaradrengur: Þessi gáta er ekki fyrir ólesna. Borar í nefið og er yfirlætislegur
Treður fingri upp í nös Blöndungs og út um hina nösina
Þiggur með þökkum
Í hvaða skáldsögu kemur lyftuvörðurinn Maurice við sögu?
Einhverri bók eftir Agöthu Christie?
Rétt hjá Hlebba!
Gefur frá sér stunu
Þiggur með þökkum
Í hvaða skáldsögu kemur lyftuvörðurinn Maurice við sögu?
Einhverri bók eftir Agöthu Christie?
Nei.
Höfundur bókarinnar dó 91 árs gamall.
91 segirðu.
Bjargvætturinn í grasinu?