Þakka þér fyrir, Megas. Hér kemur þá ein aðeins léttari.
Hvers son var Egill Skallagrímsson?
Heyrðu Megas, er þetta ekki lesbían í Sandey?
Æ, alveg vissum vér, að þar komu lesbíur við sögu, en vér höfðum, einhvurra hluta vegna, troðið blóðsugum inn í málið.
Grímsson.
Hann var Úlfsson Bjálfasonar, þ.e. Grímur.
Grímsson.
Jájá, Grímsson eða Skallagrímsson eða Skalla-Grímsson. Og svo líka eins og Fergesji segir.
Hérastubbur á réttinn.
Sigurlína Gestsdóttir, kennd við afa sinn, sem ei er getið hér.
Djö. Alltaf nær Hérastubbur til sín þeim viðurkenningum sem með rétti ættu að vera mínar.
Strunsar út í horn með piparstaukinn og bíður eftir Hérastubbi
Mér finnst að Bakaradrengur eigi bara að taka það sem honum ber og láta þetta hérakvikindi lönd og leið. Aðallega leið.
Hver dó úr hvítvöðvaveiki fyrir rétt tæpum 11 mánuðum síðan, og komst í fréttirnar fyrir?
Er verið að tala um hreindýrskálfinn, mig minnir að hún hafi heitið Líf?
Hvað tengir þessa 3 menn ( nákvæmt )
Charles De Gaulle - John Lennon - John F. Kennedy
Þetta eru allt saman flugvellir.
Þeir sváfu allir hjá Jackie Onassis (Lennon kallaði hana reyndar Ono). Sjá mynd með innlegginu hér fyrir ofan.
Auðvitað var þetta rétt. Á ég þá að spyrja núna?
Spyrðu bara! Ég man reyndar aldrei til að hafa sofið á flugvöllum, ég fékk alltaf hótel! Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér