Litaspá dagsins fyrir litamerki Baggalútíu.
Rauður
Þú munt verða fyrir miklu ónæði við vinnu þína í dag. Reyndu samt að halda þolinmæðinni.
Grænn
Heilsufar þitt hefur valdið þér áhyggjum að undanförnu. Notaðu daginn til að leita þér lækninga.
Blár
Taktu enga fjárhagslega áhættu í dag.
Gulur
Heimiliserjur eiga eftir eiga eftir að reyna á þolinmæði þína í dag. Reyndu að stilla til friðar.
Brúnn
Þú hefur orðið ósáttur við vin þinn sem þú metur mikils. Leitaðu sátta.
Liljubleikur
Gættu sérstakrar varúðar í umferðinni í dag.
Sterkgulur
Hafirðu ætlað í ferðalag í dag skaltu fresta því til morguns ef þú mögulega getur.
Grár
Þú munt þurfa á allri þinni athyglisgáfu að halda í dag við samningagerð.
Hrifblár
Þú færð tækifæri í dag sem þú hefur beðið lengi eftir.
Rjómahvítur
Þetta verður erfiður dagur. Reyndu að slappa af í kvöld.
Ljósblár
Láttu ekki draga þig út í vafasamt fjármálaævintýri.
Litaspá þessi er ætluð til dægrastyttingar en eru ekki nákvæm vísindi
Úlfamaðurinn hefur lengi fylgst með þessum þræði en vart þorað að heimsækja hann fyrr en nú. Sér til mikillrar undrunar komst úlfamaðurinn að því að hægt er að spá með litum. Nú er ára Úlfamannsins mjög dökkblá, og rauð í endana hægra og vinstra megin og hefðu margir á Baggalútnum gaman af því að kíkja á myndina. Áran er stöðug, og sagði kona sem er meðal þeirra sem reka nýaldarverslunina Gjafir Jarðar, að þetta sé ára sem sé ólík öllu sem viðkomandi hafði séð áður. Í ljós kom að verndari Úlfamannsins var engill með fjóra vængi, og spyr nú Úlfamaðurinn hvernig spá megi um þessa litaflóru í sjálfum sér.
Hrifblár
Þú færð tækifæri í dag sem þú hefur beðið lengi eftir.
Fyllist örvæntingu og hringir í blóðugt, Önnupönnu,Tigru og allar stelpurnar hér inni
Kemur aftur inn með glóðaraugu á báðum
Þú þarna Búbbinn þinn, hverju öðru gæti ég verið að bíða eftir ?
veltir fyrir sér hvaða litur hún er
Það sést er þú sýnir þitt rétta andlit eins og allir aðrir hérna. Ljómar upp
Sækýrin hefur hamskipti og sýnir sitt rétta andlit til að komast að því að hún er fjólublá
sættist við alla
vorkennir trölla fyrir að vera ástfanginn af hamskipting.
botnar ekkert í samferðamönnum sínum
Ekki í veröndinni hef ég heyrt sælrar sækýrar getið, hér er um afar sjaldgæfann karakter að ræða, og skulu menn bera honum eða henni fyllstu virðingu þar sem sækýr eru í mikillri útrýmingarhættu. Ekki þarf sækúin að hafa áhyggjur af mér þar sem ég lifi á landi en hún í vatni, og bið ég hana velkomna á Baggalútinn.