Í Hlíðarfjalli Andrés önd
lætur ekki sjá sig.
Við fjallsins rætur brustu bönd
bjáninn nær, í tvö stig.
----------------------------------
Blekafullur flakkari
fer á ballið.
Blekafullur flakkari
fer á ballið.
Smá fékk dreitil smakkari
er smó á skrallið.
Í lakkskónum þeir limbótvist
láta virðast ísí.
Í lakkskónum þeir limbótvist
láta virðast ísi
Af þessu ég hef alveg misst.
Er þetta' á Vísi?
Góða konan greiddi skuldir
gúrú síns og ektamanns.
Góða konan greiddi skuldir
gúrú síns og ektamanns.
Þetta voru dýrar duldir,
drottningar og Óla skans.
Veistu hvaðan vindur blæs?
Viltu ræða málið?
Veistu hvaðan vindur blæs?
Viltu ræða málið?
Ætli þessi austanþræs-
ingur næri bálið?
Ósköp finnst mér alltaf næs
úr ausu að súpa kálið
Ósköp finnst mér alltaf næs
úr ausu að súpa kálið.
Þarna sé ég gráa gæs
gargandi við bálið.
-------------------------------------
Nú er hérna ljúfa logn
læðist hægt að vorið.
Nú er hérna ljúfa logn
læðist hægt að vorið.
Ættum við að arka á Sogn?
Úr því fæst brátt skorið.
Verður einhver von um það
að veröldin brátt endi?
Verður einhver von um það
að veröldin brátt endi?
Nálgast óðum karlinn kvað
kveðju,til þín sendi.
----------------------------
Hlauptu meðan tími er til
ot taktu á þínum málum.
Hlauptu meðan tími er til
ot taktu á þínum málum.
Komdu svo með kerti og spil
og kökur handa sálum.
Fréttalestri lokið er
lítið bættist ástandið.
Fréttalestri lokið er
lítið bættist ástandið
Ólafur Ragnar fremstur fer
Forseta hann kjósum vér.
Fátt ég veit um fjármál mín
og félögin sem um þau halda.
Fátt ég veit um fjármál mín
og félögin sem um þau halda.
Allra jöfnust yfirsvín
æ við kjósum hér til valda.
Engin félög á ég þar
sem engir finnast skattar.
Engin félög á ég þar
sen engir finnast skattar.
Þungan allan Bjarni bar
bjálvar þessir skrattar..
.........................................
Undanskot og penný par,
pjakkar fynnast víða.
Undanskot og penný par
pjakkar fynnast víða.
Bjarni langt af lýðum bar
lög sá kann að smíða.
Gegnheilum og góðum mönnum
getur stundum fatast.
[i]
Gegnheilum og góðum mönnum
getur stundum fatast:
Það er byggt á sögum sönnum
sögnum er ei glatast.
----------------------------------
Kannast ég við þursa þrjá,
þunglynda og mædda.
Kannast ég við þursa þrjá
þunglynda og mædda.
Aflöndum þeir eru frá.
Upplifa sig hædda.
Alþýðu er ekki hollt
yfirstétt að kanna.
Alþýðu er ekki hollt
yfirstétt að kanna.
Óðara hún opnar skolt,
þú endar milli tanna.
Eitrið flæðir út um leið,
á þig nær að leka.
Eitrið flæðir út um leið
á þig nær að leka.
Um vegir röltir Gunna gleið
galvösk með stóran dreka
----------------------------------
Gengið hefur langa leið
Lalli á öðrum skónum.
Gengið hefur langa leið
Lalli á öðrum skónum
til Laufeyjar sem liggur gleið
á leyniaflandskrónum.
Það er skiljanlegt að skarpir menn
skipuleggji glæpi