Fyrirgefðu framhleypnina, en þetta er vitlaust stuðlað hjá þér gami radíó fíblurinn þinn.
Bessi leyfði mér að breyta smá.
Jólasnövlið snýr á best
sneysafullur baukur.
Ég afsaka ekki framhleypnina í þessu tilfelli. Tóneyra mitt, sem hefur ekki brugðist mér hingað til, nemur svokallað "sníkjuhljóð", sumsé d-hljóð á í "sn" og "sl" samstæðum. Það gerir það að verkum að fyrrnefndar samstæður stuðla fullkomlega við st. Ef þitt tóneyra, eða framburður þinn, er af öðrum toga, bið ég þig að líta undan og láta sem ekkert c. Ég leyfi mér að vitna í sjálfan mig:
Þróun móðurmálsins tel
meitla góða siði.
Sníkjuhljóðið stuðlar vel
hjá slyngun ljóðasmiði.
Jólastressið slær á best
sneysafullur baukur.
Jólastressið slær á best
sneysafullur baukur.
Slyngan vantar stuðlaprest
sem snappar á þig, laukur.
Í snýkjunni víst snapa mörk
snjallar boltaspyrnur
Í snýkjunni víst snapa mörk
snjallar boltaspyrnur.
Óðagotar með spari spörk
sposkir opna glyrnur.
------------------------------
Furður á himni byrtast brátt
bliknar við það sólin.
Furður á himni birtast brátt
bliknar við það sólin
Í kvikindum mun heyrist hátt
heims þá vítt um bólin.
Jeg er haldinn jólasveinum;
jóðla, garga og hlæ.
Jeg er haldinn jólasveinum;
jóðla, garga og hlæ.
Heiftarlegum haldinn meinum.
Hættur. Ókei, bæ.
Amma mín er eins og flestir,
alveg löngu dauð.
Amma mín er eins og flestir,
alveg löngu dauð.
Mega af því mínir lestir
margfaldast sem gauð.
Bækurnar á betra verði
bjóða ýmsir núna.
Bækurnar á betra verði
bjóða ýmsir núna.
Samt er bezt að ver'á verði
með visakortið lúna.
Lízt mér ekki limrur á.
Ljótur er sá bragur.
Líst mér ekki limrur á.
Ljótur er sá bragur.
Úti grúfir þokan grá,
góður er hafinn dagur.
-----------------------------------
Opnum pakka góðar gjafir,
gleðileg jól.
Opnum pakka góðar gjafir
gleðileg jól
Þú líka á morgun hátíð hafir
þá hækkar sól.
Eg er jólasveinasetinn
sælist til að stela og hrekkja.
Ég er jólasveinasetinn
sælist til að hrekkja.
Líka trúr og mikils metinn
monnný vil ég trekkja.
----------------------------------------
Jólasnissinn Stinni stuð
starir út í bláinn.
Jólasnissinn Stinni stuð
starir út í bláinn.
Eftir þetta ógnarpuð
má ætl'að hann sé dáinn.
Visakortið vil ég mitt
vernda þessa daga.
Visakortið vil ég mitt
vernda þessa daga.
Ennþá hef ég engann hitt
sem aurskort minn vill laga.
á morgun ég mun Pitsu panta
og pakkana svo raða.
Á morgun ég mun pitsu panta
og pakkana svo raða.
Skúra alla króka og kanta
krakkana svo baða.
---------------------------------
Bráðum koma jóla jól,
jólasveinninn raular.
Bráðum koma jóla jól,
jólasveinninn raular.
Ferlegt er það fóla gól,
fíla bara aular.
Geðveiks núna óska árs
öllum Lútarvinum.
Geðveiks núna óska árs
öllum Lútarvinum.
Mótorhjóla, heavy hárs
og hægðum, brúnum, linum.
Drögum ekki dul á það
sem dæmin okkur sanna.
Drögum ekki dul á það
sem dæmin okkur sanna.
Einu sinni karlinn kvað,
kerskin geðist Anna.
--------------------------------
Nýa árið byrjar blítt,
bráðnar snjór og klaki.
Nýa árið byrjar blítt,
bráðnar snjór og klaki.
Árin þjóta ótt og títt,
ótalmörg að baki.
Ábyrgð bera alltaf fæst
orð svo nú skal segja: