Ferðu að týna berin ber
í berjatýnu þína?
Farinn er nér herinn hér
þótt her sé en í Kína.
Börnin horf'á Badda grís
og borða seríósið.
Börnin horf'á Badda grís
og borða seríósið.
Megum við fá meira, plís,
og má hér slökkva ljósið?
Út á gömlum árabáti
ætla ég til veiða.
Út á gömlum árabáti
ætla ég til veiða.
Tölvert magn af táragráti
er telpurnar menn meiða.
Kartöflur og mjúkur mais
meðlæti með grillmat.
Kartöflur og mjúkur mais
meðlæti með grillmat.
Endar það í húllumhæis-
hringdans sem er nill-frat.
Víst er gott að vera einn
þá veröldin er hrellin.
Víst er gott að vera einn
þá veröldin er hrellin.
Enginn kemur ekki neinn
svo einn ég sé um bellinn.
Glaður og ungur í anda
öldunginn menn bara sjá.
Glaður og ungur í anda
öldunginn menn bara sjá.
Ég engann samt ætla það vanda
og eflaust fer brjáðum á stjá.
Ódýrt núna aflið telst
svo ekki er gott að virkja.
Ódýrt núna aflið telst
svo ekki er gott að virkja.
Þó í fréttum þetta helst
að Þurfi hag að styrkja.
Biluð er nú bjallan mín
batterýið ónýtt.
Biluð er nú bjallan mín
batterýið ónýtt.
Má þá veiðast músin fín,
já músasteik fær disk prýtt.
Asnastrikin eru mörg
sem enginn nær að laga.
Asnastrikin eru mörg
sem enginn nær að laga.
Karlinn reiður, konan örg
krökkum er til baga
Meyjan hlær um miðja nótt
og missir vatn í sófa
Meyjan hlær um miðja nótt
og missir vatn í sófa.
Trópí þá skal taka fljótt
svo teljist ekki slysið ljótt.
Hláturinn víst lengir líf
en lýtir hvíta áklæðið.
Hláturinn víst lengir líf
en lýtir hvíta áklæðið.
grætur þetta glaðvær víf
grettin leggst í fáræðið
Allir leggja orð í belg
ef þeir svara kalli
Allir leggja orð í belg
ef þeir svara kalli
vont er þá að vaða elg
í vísnaþráðasvalli.
Upp sé renna annan dag
eftir helgarfríið.
Upp sé renna annan dag
eftir helgarfríið.
um það vil ég yrkja brag
óð minn ei því flýið
Komin hérna nú er nótt
nokkuð björt að líta
Komin hérna nú er nótt
nokkuð björt að líta.
En hún hverfur ansi fljótt
er ég fer að rýta.
Aðra skoðun oft má fá
eftir litla greiðslu
Aðra skoðun oft má fá
eftir litla greiðslu
einhvern botn hér yrkja má
um andans rímnaleiðslu
allir vilja yfirleitt
eitthvað fá að borða
allir vilja yfirleitt
eitthvað fá að borða
frá klukkan tólf til klukkan eitt
þeir koma sér upp forða.
í krísu vonda komast má
ef karpa menn um trúna.
í krísu vonda komast má
ef karpa menn um trúna.
Boðorðin þá beint á ská
brjóta flestir núna.
Töfraseyði magnað má
úr mistilteini vinna.
Töfraseyði magna má
úr mistilteini vinna.
ef skjótlega maka skaltu fá,
skítverkum að sinna
latur fúll og framþungur
fara vill um þræði.