Laufþunn klæði læðast í
limir naktra trjáa.
Lóan syngur dirren dí,
drynur hafið bláa.
----------------------------------
Langur tími liðin er,
ljóð hef sett á þráðinn.
Langur tími liðinn er,
ljóð hef sett á þráðinn.
Gyllinæðin gagnast mér
og grefils nárakláðinn.
Lundavarp er liðið und-
ir lok þar suðrí Eyjum.
Lundavarp er liðið und-
ir lok þar suðrí Eyjum.
Kanínanna kynjafund-
ir kynda undir peyjum.
Ég Ólaf Ragnar alltaf kýs
út úr mínum leikjum.
Ég Ólaf Ragnar alltaf kýs
út úr mínum leikjum.
Svo má alltaf annan grís
aftur fá með kók og hrís.
Ekki veit ég ennþá hvern
á svo loks að kjósa.
Ekki veit ég ennþá hvern
á svo loks að kjósa.
Við kannski verðum ennþá ern
þá öðrum megum hrósa.
Ólafur er ansi klár
íhaldinu að smala.
Ólafur er ansi klár
íhaldinu að smala.
Framsókn seinna fellir tár
svo fyllir nokkra bala.
Víst er gott að vanda sig
þá vigtað er í kökur.
Víst er gott að vanda sig
þá viktað er í kökur.
Karlinn var að mana mig,
magnaðar gerir stökur:
-------------------------------------------
Eins og gamall hani á hól
hendist ég á fætur:
Eins og gamall hani á hól
hendist ég á fætur:
talsvert fyrr en sést í sól
um sumarbjartar nætur.
Viltu með mér vaka í nótt?
Æ, verst að hún er búin!
Viltu með mér vaka í nótt?
Æ, verst að hún er búin!
Ölið þraut mér alltof fljótt.
Öllu ég er rúin.
Mesta lífi er lifað hefur verið
lokið er.
Mesta lífi er lifað hefur verið
lokið er...
Andi minn sem yfirgaf þá skerið
er aftur hér.
Kópsson ennþá kann á bíl
og klýfur létt ófærur
Kópsson ennþá kann á bíl
og klýfur létt ófærur
Brjálað spól og brekku príl
svo brúnt lekur í nærur.
Kafarinn með kombakkið.
kætti gamla jaxla.
Kafarinn með kombakkið.
kætti gamla jaxla.
Hvernig fór með krómlakkið?
Hver skal ábyrgð axla?
Veistu hvort að virki hér
vettlingstökin hrjúfu?
Veistu hvort að virki hér
vettlingstökin hrjúfu?
miklu betra mikið smér
makað á þær ljúfu.
Ætlar þú í Uppakot
ölvaður og kátur?
Ætlar þú í Uppakot
ölvaður og kátur?
Höfða til þín huppaskot?
Hefurðu með þér slátur?
Liggur þú á lausu hér
með leyfisbréfið klárt?
Liggur þú á lausu hér
með leyfisbréfið klárt?
Verð að kúka vont það er
og voðalega sárt.
Styttist nú í stundina
er staupi póar lyfta.
Styttist nú í stundina
er staupi póar lyfta.
Út um gróna grundina
gesti munt þú tyfta.
Í svefn- þíns -poka pláss er nóg
er píur vantar skjólið.
Í svefn- þíns -poka pláss er nóg
er píur vantar skjólið.
ef ungmey heilla upp úr skóg
þá eigi vantar hólið.
Lata brún og litla rauð
langar til að ferðast.
Lata brún og litla rauð
langar til að ferðast.
Sækja þeir í sætabrauð
svo þeir nái að herðast.
Ferðu að týna berin ber
í berjatýnu þína?