Súrt er þetta letilíf
en letjandi að vinna.
Offari vill vín og víf
og vinnuframlag hinna!
Andleysið er algert nú,
aðstoð þarf ég núna.
Andleysið er algert nú,
aðstoð þarf ég núna.
Með hraði þér til hægri snú
hjartað þekkir trúna.
Hér þó falli hitamet
hygg ég galla á því
Hér þó falli hitamet
hygg ég galla á því.
Pálmasunnu,helgar hret,
hríðar ögn svo páskafrí
-------------------------------------
Svo kemur vorið blessað blítt
brestur á með hita og sól.
Svo kemur vorið blessað blítt
brestur á með hita og sól.
Þarnæst haustið strangt og strítt
síðan koma blessuð jól.
Eggin páska allir fá,
allt í gáska og gleði.
Eggin páska allir fá,
allt í gáska og gleði.
Stafar háska Stepan frá
stuðla máski spreði.
Leiðin breiða létt og greið
leiða seyðir skussa
Leiðin breiða létt og greið
leiða seiðir skussa
Meiðir neyðin, Mjása kveið:
meðalgleið var hlussa.
Virðist senn í vori loft,
vakna menn til dáða.
Virðist senn í vori loft,
vakna menn til dáða.
í vetrardvala var ég oft
með vanga mína báða.
Brosi ég er vorið vaknar
vegi landsins skoða þá.
Brosi ég er vorið vaknar
vegi landsins skoða þá.
Kaggans gamla Sammi saknar,
sannar raunir æji já.
-------------------------------------------
Nú er úti blessuð blíða,
bræðir snjo úr fjöllunum.
Nú er úti blessuð blíða,
bræðir snjo úr fjöllunum.
Kaupmáttsaukning kemur víða
kátt er þá hjá tröllunum
Vertíðin nú byrjar brátt
á Bessastöðum.
Vertíðin nú byrjar brátt
á Bessastöðum.
Þá verður í koti kátt
og krytur í öllum blöðum.
-------------------------------------------
Vorið er komið gæskam mín góða,
grátfuglar kvaka móunum í
Vorið er komið gæskam mín góða,
grátfuglar kvaka móunum í
Upplagt nú væri saman að sjóða
súpu og fara í páskafrí
Súkkulaði víst ég vont,
verst er það í eggjum.
Súkulaði víst ég vont,
verst er það í eggjum.
Það er bara meðfætt mont,
mat á borð við leggjum..
------------------------------------
Mína árans leiðu lund
legg ég fyrir róða.
Mína árans leiðu lund
legg ég fyrir róða.
Hér og nú, mín hinsta stund,
er heiminum til góða.
Er geðið það fyllist af gáska,
við grámann að baki leggjum.
Er geðið það fyllist af gáska
við grámann að baki leggjum.
Klerkarnir þeir prédikka um páska,
og prúðbúið fólk,læðist með veggjum.
---------------------------------------------
Þoku bakkar og kulda klakkar,
kemur ekki bráðum vor.
Þokubakkar og kuldaklakkar,
kemur ekki bráðum vor?
Með ADHD allir krakkar
ösla polla, sjúga hor.
Á skírdaginn er skratti gott
að skúra bæinn.
Á skírdaginn er skratti gott að skúra bæinn.
Á föstudaginn langa, fisk,
færa upp á lítinn disk.
Á laugardag að leggja upp með léttu skokki.
Á laugardag að leggja upp með léttu skokki.
Þótt allt sé hér í fokking fokki
ég ferðast um á sexí brokki.
Fána margir flagga' í hálfa á föstudaginn
Fána margir flagga' í hálfa á föstudaginn.
En á sjálfan sunnudaginn,
springur í mér veslings maginn.
Loks er lokið súld og grút,
lýsir himinn sólin.