Út á túni í brúnan bauk,
Bárður spörðin tíndi.
Hafði með þeim hráan lauk
og hrossa- keytusteiktan -gauk.
Legðu eyrum lítt við því
sem lofa fínir bankar.
Legðu eyrun lítt við því
sem lofa fínir bankar.
Undan þeim til fjalla flí,
eru fáránlegir þankar.
--------------------------------
Í morgun leit ég Stebba strí
starandi uppá þaki.
Í morgun leit ég Stebba strí
starandi uppá þaki.
Nú helvítið úr hálslið sný
svo heimskan enda taki.
Í mannþrönginni í Moskvubý
ég mætti eitt sinn konu.
Í mannþrönginni í Moskvubý
ég mætti eitt sinn konu.
Þangað aftur snöggur sný
og snudda þar við Monu.
-------------------------------------
Sú er mærin myndarleg
og mikið góð í bólinu.
Sú er mærin myndarleg
og mikið góð í bólinu.
Konan er samt kindarleg
því karlinn gleymdi tólinu.
Eldi fisks var eldi að bráð,
upp þá brann allt vatnið.
Eldi fisks var eldi að bráð,
upp þá brann alt vatnið.
Skelfingin var hildum háð
hræðsluórar.(batnið:)!
-------------------------------------
Inn til landsins aumur lít,
langa kalda vetrar daga.
Inn til landsins aumur lít,
langa kalda vetrar daga.
Firðin geymir fjöllin hvít,
felur mjöllin græna haga.
Logar sveipa lífsins tré,
laufin geta ekki sloppið.
Logar sveipa lífsins tré
laufin geta ekki sloppið.
Þar í liggja hin vondu vé,
vont mér þikir popið.
---------------------------------
Ég mér skelli á færaskak,
skútukarl var forðum
Ég mér selli á færaskak,
skútukarl var forðum.
Ey skal bera af því blak
að blökkin fór úr skorðum.
Olían er ansi dýr
allt mun stoppa bráðum.
Olían er ansi dýr
allt mun stoppa bráðum,
nema einhver furðufýr
sem finnst á vísnaþráðum.
Auðlind sú er einmitt mest:
Andríkt snilldarkvæði
Auðlind sú er einmitt mest:
Andríkt snilldarkvæði
kona sem er góð við gest
gæti verið æði.
svofelld orðin út úr kú
ætíð frá mér vella.
svofelld orðin út úr kú
ætíð frá mér vella.
Á ég heima börn og Bú
þó biluð sé mín hella.
Vont er það að vinna frítt
að vegferð sinnar þjóðar.
Vont er það að vinna frítt
að vegferð sinnar þjóðar,
Það er böl og skratti skítt,
Skapti gamli hljóðar.
-------------------------------------
Eftir hverju bíður Björn,
um bjartar sumarnætur.
Eftir hverju bíður Björn,
um bjartar sumarnætur?
Svíns- í verju sýður -görn,
vill svartra guma dætur.
Leiðin áfram björt og bein
að botni Drekasvæðis
Leiðin áfram björt og bein
að botni Drekasvæðis,
hamslaus orkan heillar svein
hjá- þess -guðafæðis.
Finnst mér oft að fís og bes
fari mjög vel saman.
Finnst mér oft að fís og bes
fari mjög vel saman.
Einkum er ég ligg og les
í lotu Gagn og gaman.
Af lesefni mér líkar best
Litla gula hænan.
Af lesefni mér líkar best
Litla gula hænan
en í bókum allvel sést
að nú rauð er vænan.
Einn í heimi enn er Páll
þó ekki gráti snáðinn.
Einn í heimi enn er Páll
þó ekki gráti snáðinn.
Hann er oftast þægur þjál
þegar nálgast bráðinn.
---------------------------------------
Flaug á strompinn storkurinn,
stuttfættur er Lappi.