Innan tökur og tannpína
takverkur og liðagigt.
Um það má hér ey grína
án þess komi taðgatslykt.
Í kirkjugarðinn kemst ég senn
og kaldur ligg á sex fetum.
Í kirkjugarðinn kemst ég senn
og kaldur ligg á sex fetum.
Þar má finna marga menn,
mest ber þó á tveim Bretum.
Legsteinn svo á legstaðinn
leggst, ef einhver tímir því.
Legsteinn svo á legstaðinn
leggst, ef einhver tímir því.
Enn þó sé hann óhlaðinn
íþyngir mér lífsins frí.
Ef þú krækir öngli
í þinn mýksta hluta
Ef þú krækir öngli
í þinn mýksta hluta
strjúktu hann með stöngli
og stingdu burt með kuta.
Varla firran öll er eins,
óstöðvandi rennur.
Varla fyrran öll er eins
óstöðvandi rennur.
Fer um þarma Svenna Sveins
sviðnar þar og brennur.
---------------------------------------
Esjan fagnar fönnunum
fegurð allra mjalla.
Esjan fagnar fönnunum
fegurð allra mjalla.
En þetta er mæða mönnunum
sem mestan hafa skalla.
Ég heyri úr iðrum mínum garnagaul.
Gæti ég nú fengið mat að éta?
Ég heyri úr iðrum mínum garnagaul.
Gæti ég nú fengið mat að éta?
Garnir þínar gefa frá sér baul.
Ég giska á það kunnir þú að meta.
Hjörtu sker og skaftpott tek,
skutla í hann lauk og smjöri.
Hjörtu sker og skaftpott tek,
skutla í hann lauk og smjöri.
Sleifina ég slyng svo skek
og slafra í mig orkufjöri.
Enginn veit hvar enda mun
alheimurinn stóri.
Enginn veit hvar enda mun
alheimurinn stóri.
Við þetta bættist bankahrun,
sem bara fáir höfð' um grun.
Er furða að ég fálátur nú þjóri?
Reyntréð í garði mínum grænkar,
gamalt tré sem heldur sínu striki.
Reynitréð í garði mínum grænkar,
gamalt tré sem heldur sínu striki.
Hag minn líka vorið góða vænkar
þó vissulega gamall orðinn þyki
Rapparar tveir reittu gras
í rytjulegu túni
Rapparar tveir reittu gras
í rytjulegu túni.
Úr því verður argaþras
og eflaust líka nokkuð fjas
sem lögreglunnar leiðir uppábúni.
Enginn pappír um það fannst
hvað yfirvaldið myndi
Enginn pappír um það fannst
hvað yfirvaldið myndi.
Efir þegar á rassinn rannst
rjúkandi ,meður vindi.
-----------------------------------------
Ljúfar stundir margar má
muna frá gömlu dögum.
Enginn pappír um það fannst
hvað yfirvaldið myndi.
En kynsvallið sem við það vannst
var mitt líf og yndi.
Hér bara varð að hafna botni lappa.
Ljúfar stundir margar má
muna frá gömlu dögum.
Ljúfar stundir margar má
muna frá gömlu dögum.
En ef þú festist í þásins þrá
þrengir mjög að högum.
Friðargæzlan fór sinn veg
nú far'um Talibanar.
Friðargæslan fór sinn veg
nú far'um Talíbanar.
Þeirra gerð ógn ógeðsleg
óðari en reiðir hanar.
------------------------------------
Úti sér leika börnin blíð
bráðum kemur sumar.
Friðargæzlan fór sinn veg
nú far'um Talibanar,
sem fyrirmælum taka treg
tilsögn vart þeim banar. (!)
Úti sér leika börnin blíð
bráðum kemur sumar.
Blómgast runni, bali, hlíð,
brenndan snæðum humar.
Merkingin er mjög oft klén,
í mínum seinnipörtum.
Merkingin er mjög oft klén,
í mínum seinnipörtum.
Æ má setja í orðadren
yrkingar með vörtum.
Þegar heftir hugarflug
heimsósómaskortur