Öllum vill hann gera gott
og greiða allra vanda.
Borgarstjórinn fær sér flott
flúrið upp til handa.
Ólíkt hafa yfirbragð
Alþingis- og Ráðhúsið.
Ólíkt hafa yfirbragð
Alþingis- og Ráðhúsið.
Í öðru finn ég ullarlagð
en aðeins geit á náðhúsið.
Lagabálkar leka út
sem lesið enginn hefur.
Lagabálkar leka út
sem lesið enginn hefur.
Ríkisvald með rembihnút
í rassgatinu sefur.
Nú er komið næturfrost
á náðhúsinu mínu.
Nú er komið næturfrost
á náðhúsinu mínu.
Engan hef ég annan kost
en í mér halda pínu.
Stjórnin ennþá stendur keik
þó staða hennar teljist veik
Stjórnin ennþá stendur keik
þó staða hennar teljist veik
Orðróm samt hún kom á kreik
konan sem oss skjaldborg sveik.
Okkar skjaldborg ósanna
okkur lofar Jóhanna.
Okkar skjaldborg ósanna
okkur lofar Jóhanna.
Hana ætti að banna
og senda til tröllanna.
Ráðherrarnir einn og átta
alltaf koma af fjöllunum.
Ráðherrarnir einn og átta
alltaf koma af fjöllunum.
Nú er ráð, í nafni sátta
nokkra að færa tröllunum.
Enginn skyldi Árna Pál,
(öðlingspiltinn) dissa.
Engin skyldi Árna Pál
(öðlingspiltinn) dissa.
Þetta er góð og saklaus sál
sárt hann væri að missa.
Verja skulum vora stjórn
verkamenn og bændur
Verja skulum vora stjórn
verkamenn og bændur.
Drottningar- vart dugar -fórn
ef dug er kóngur rændur.
Beinist allt í bestann veg
ef bankar fá að ráða.
Beinist allt í bestann veg
ef bankar fá að ráða.
Þá gefast ráðin gæfuleg,
á garnalosun bráða.
upp úr glasi ögn ég sýp
enn er lögg til skipta.
upp úr glasi ögn ég sýp
enn er lögg til skipta.
Niður fyrir Kristi krýp
og Karl má öxlum yppta.
Kristur breytti vatni í vín,
víst er sopinn góður.
Kristur breytti vatni í vín,
víst er sopinn góður.
Lífsins tæra lindin mín
lausn og sálarfóður.
Bruggið hann af bestu gerð
buna lét af kútum
Bruggið hann af bestu gerð
buna lét af kútum
gekk á vatni, gleypti sverð
grýtti baggalútum.
Gott er fara í göngutúr
á Galíleuvatni.
Gott er fara í göngutúr
á Galíleuvatni.
Einkum þegar sólin súr
sér til þess það sjatni.
Of er stuðlað, yfirhopp
ætti því að koma.
Oft er stuðlað,yfirhopp
ætti því að koma.
Uns að kemur stóra stopp.
strákur muntu voma.
-------------------------------------
Ég á kanski betei botn,
Billi í næstu viku.
Ég á kanski betri botn,
Billi í næstu viku.
Ætli verði allir skotn-
ir þeir sem mig sviku.
Uppi á palli, inni í skógi,
ekkert tjaldið finnst.
Upp á palli, inní skógi
ekkert tjaldið finnst.
Kanski skrítið telur Tógi
á tjöld er kvergi minst.
---------------------------------
Rumpulíður með slurk af slori
sllummurnar hér og þar.
_----------------------------------------------
Þakka ábendinguna ,hlebbi.
Skógi og Tóti? Nei, nú hefðurðu stigið vitlausu megin fram úr í morgun.
Upp á palli, inní skógi
ekkert tjaldið finnst.
Þín mun, Tóti, þótt ég lógi
þér - að líkum varla minnst.
---------------------------------
Rumpulíður með slurk af slori
slummurnar hér og þar.
Fretblautur með fullt af hori,
frunsurnar allsstaðar.
Fyrripart ég færi þér.
Fáðu botn í hann.