Dordingull verðskuldar framhjálit.
Allt það sem ég eys frá borði
inn um neglugatið kemur.
Hætti ei sá flæðisforði
fæ ég lifað sífellt skemur.
---
Eina veit ég auðlind þá,
sem öðrum þykir betri
Eina veit ég auðlind þá,
sem öðrum þykir betri
Náttúran er sjón að sjá
að sumri jafnt sem vetri.
Orkuboltaauðlindin
Orðin núna mögnuð.
Orkuboltaauðlindin
Orðin núna mögnuð.
Satt mig hefur sauðkyndin
við sérstaklegan fögnuð.
Undir rjáfri alþingis
ey um nón ég sveima.
Undir rjáfri alþingis
ey um nón ég sveima.
Segir karlinn Billi,bings
bilaði trónir heima.
----------------------------------
Úti er þokan gjósku grá
gosmökkinn leggur víða.
Úti er þokan gjósku grá
gosmökkinn leggur víða.
Hósta ryki blómin blá
og býsn í stilkinn svíða.
Þegar ég í þvottinn næ
og þurrkann úti á snúru
Þegar ég í þvottinn næ
og þurrkann úti á snúru
tel ég oft von eins bis drei,
enda' í skapi klúru.
---
Djöfull finnst mér gaman, gott
og geggjað jafnvel líka,
Djöfull finnst mér gaman, gott
og geggjað jafnvel líka,
Djöfull finnst mér daman flott
í drulluslag án flíka.
Kosningarnar koma brátt
kommarnir þá gleðjast.,
Kosningarnar koma brátt
kommarnir þá gleðjst.
Já fyrr var oft í koti kátt
kratar glaðir seðjast..
-----------------------------------
Drungi í lofti þoku þras
þrumu veður líka.
Drungi í lofti þoku þras
þrumu veður líka.
mykjuhaugsinsmetangas
marga gerir ríka.
Auðlindin er endalaus
alltaf hægt að græða.
Auðlindin er endalaus
alltaf hægt að græða.
Stanslaust vellur úr vorum haus
vit á tonnum fræða.
---
Margir halda hausinn sinn
hafa' að geyma vit
Margir halda hausinn sinn
hafa' að geyma vit.
Með aðra hendi undir kinn
þeir alltaf forðast strit.
Ef þú brosir áttu séns
á aðeins betra lífi.
Ef þú brosir áttu séns
á aðeins betra lífi.
Bætir skapið grín og glens
þótt gráti ég allt þýfi?
Bráðum kemur betri tíð
og bankar aftur dafna.
Bráðum kemur betri tíð
og bankar aftur dafna.
Fagurt syngur fögur hlíð
fluor börn í kafna
Áttu enn þá eðal dós
með öxul skemda legu?
Áttu enn þá eðal dós
með öxul skemda legu?
og ónýt fram- og afturljós
á óteljandi vegu?
---
Sjálfur hef ég aldrei, aldrei átt (ath. að klifun veldur ekki ofstuðlun)
eitt né nokkuð, sem er penings virði.
Sjálfur hef ég aldrei, aldrei átt
eitt né nokkuð ,sem er penings virði
Úr mér dregur allan allan mátt,
agaleg er lífsins þrauta byrði.
-------------------------------------------
Nú er blíða í bænun
bátar á miðin fara.
Nú er blíða í bænun
bátar á miðin fara,
feitan fisk að snara
fljótt í aftanblænum.
Loðinn garð minn geng að slá
með góðan ljá í hendi.
Loðinn garð minn geng að slá
með góðan ljá í hendi.
mig í fætur stinga strá ,
strýk þau af með vendi.
----------------------------------------
Ylmur góður af túnsins töðu
tekin saman alveg þurr.
Ylmur góður af túnsins töðu
tekin saman alveg þurr
er mínir elsku grannar gröðu
gefa frá sér hjartnæm urr.
Nú er í mér geðið gramt,
því góða skapið hvarf.