Hæst ber þar stöðu Villimeyjar sem er frilla konungs.
Ljómar upp
Er Baggalútía ekki lýðveldi? Við höfum hér ríkistjórn og forseta,! Svo hvað er þessi kóngsfígúra að vilja upp á dekk?
Haldið þið að þetta sé sirkus Billa Smart? Við erum ekki stödd í Bónusbúð þar sem þú kaupir kíló af sjófrystri ýsu á 500kall og þegar klakinn er brotinn utanaf þá eru 60grömm eftir. ÞJÓÐKJÖRIN FORSETI VOR, LENGI LIFI, en Óli Grís má hirða kóngapakkið! xTxT
Dorri: við erum líka með keisara. Hér er nefnilega þróuð stjórnskipan með þrískipt vald: forsetavald, keisaravald og konungsvald. Fjórða valdið er svo kaupfélagsstjórinn.
Að ekki sé talað um kaupfélagsstjóraembætti Offara!
Þá bendi ég á að náhirðin mín (utan drottiningar) er enn óuppfærð með öllu, þetta er hirðin hans Haka. Ég rak reyndar engan en réði nokkra nýja. Hæst ber þar stöðu Villimeyjar sem er frilla konungs.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að úr þessu hefur loksins verið bætt. Að auki hefur Offara og Gogginum verið bætt inn í tengslum við Kaupfjelag Baggalútíu og Barnaskóla Baggalútíu. Gerðum vjer samhliða því þá ánægjulegu uppgötvun að vjer erum viðskiptaráðherra en undir það hlýtur Kaupfjelagið að heyra. Getum vjer því fyrirskipað að þar verði stór hergagnadeild Ljómar upp.
Síðan viljum vjer vekja athygli á þessum orðum vorum á síðustu síðu:
Já góðan daginn og halló halló! Ég er eiginlega kominn með leið á þeim hlutverkum sem ég er með. Er ekki eitthvað nýtt og spennandi embætti í boði?!
Eigi væri vitlaust að endurskoða verulega ráðherra- og embættismannalistann með hliðsjón af nýjum tímum. Það vantar t.d. bæði forstjóra fyrir Bankasýslu baggalútíska heimsveldisins og forstjóra fyrir Gullbringusýslu baggalútíska heimsveldisins.
Jafnvel gæti verið áhugaverð tilbreyting að einhver annar en vjer myndi sjá um slíka endurskoðun í sjerstökum þræði en vjer myndum svo færa niðurstöðuna inn í listann fremst í þessum þræði. Don De Vito gæti t.d. orðið yfirembættaendurskoðunarstjóri (eða einhver annar hafi hann eigi áhuga). Þessa hugmynd má að sjálfsögðu ræða frekar hjer.
Já, þetta er mjög freistandi staða og ég held hreinlega að ég taki hana. Ég er hins vegar í þónokkuð stopulu netsambandi þessa dagana og ekki líklegt að það lagist fyrr en eftir u.þ.b. þrjár vikur. Hins vegar get ég alveg hafið þennan umræðuþráð og komið öllu umsóknardótaríinu í gang og farið yfir það að u.þ.b. þrem vikum loknum.
Já veistu, ég held ég slái til.
Vjer sækjum hjer með form- og opinberlega, og í sjöriti, um stöðu vinamálaráðherra. Sem meðmæli leggjum vjer fram titilinn vinsælasta stúlkan frá síðustu átján árshátíðum ritstjórnarinnar. Leggur alla nítján borðana huggulega á borðið fyrir framan ráðningarnefndina
Vjer sækjum hjer með form- og opinberlega, og í sjöriti, um stöðu vinamálaráðherra. Sem meðmæli leggjum vjer fram titilinn vinsælasta stúlkan frá síðustu átján árshátíðum ritstjórnarinnar. Leggur alla nítján borðana huggulega á borðið fyrir framan ráðningarnefndina
Átjan árshátíðir en nítján sigurborðar. Hmmmmm. Hér er mysa í maðkinum.
Einu sinni var ég tvöfaldur í roðinu. Roðnar og flissar
Er staða áfengismálaráðherra laus til umsóknar ?
Ef svo er, þá sækist ég hér með eftir því embætti.
Skálar með kokteilglasið í hendinni og sveran vindil í kjaftinum
Hvernig er staða sjávarútvegs-, landbúnaðar- og iðnaðarmála? Séu hér fyrirhugaðar breytingar á þessum efnum í átt til sameiningar, þá vil ég sækja um embætti tvinnamálaráðherra.
m.e.h.
Blöndungur
Líklega mun Vamban eigi gefa upp stöðu landbúnaðarráðherra að svo stöddu, enda hefir hann reglulega mætt hingað að athuga ýmis mál.
Hér verða engin ráðuneyti sameinuð og hana nú!
Á borði mínu er hins vegar tillaga um að stofna ráðuneyti lesbískra karla. Ég sé ekki ástæðu til annars en að það verði þegar stofnað. sömuleiðis smurolíu- og sleipiefnaráðuneyti, ráðuneyti annarlegra áhugamála og ráðuneyti nefnda sem notaðar eru til að svæfa annarleg áhugamál.
Jafnvel mætti hýsa það allt í kynvilluráðuneyti.
Hver er Ráðherramálaráðherra ???
Hver er Ráðherramálaráðherra ???
Hvæsi er ráðherraráðherra. Ætli hans ráðuneyti nái ekki yfir þennan málaflokk?
Er embætti landssdómsskipara laust til umsóknar?
Hvernig er með stöðu ráherra drykkja sem geymdir hafa verið í tunnum gerðum úr tréi - hefur verið skipað í hana?
Eða embætti einstaklings sem fær há laun og bíl til afnota fyrir það eitt að mæta seint á skrifstofuna taka tveggja tíma matarhlé, fara snemma og gera aldrei neitt gagn? Ég skal fús taka það að mér