— GESTAPÓ —
Um meinsemdir og vandamál á nútíma Gestapói
» Gestapó   » Umvandanir, ábendingar, tilmæli
     1, 2, 3 ... 12, 13, 14  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 31/8/06 23:13

Sjerstakt svæði var til fyrir svona umræður áður fyrr en svo virðist sem það sje horfið. Þess ber að geta að þessi fyrsta málsgrein er eigi hjer sem kvörtun í anda þráðarins heldur til að skýra ástæðu tilvistar þessa þráðar.

Auðvitað er allt enn að mótast og slípast til en eigi höfum vjer komist hjá að veita eftirfarandi atriðum athygli:

(1) Eigi er svæði til staðar þar sem hæstvirt ritstjórn svarar fyrirspurnum lýðsins.
(2) Eina útópía heims (Baggalútía) er eigi með sjer svæði. Það gæti verið vandamál eða þær umræður e.t.v. runnið saman við aðrar umræður.
(3) Meira síðar (líklega en vonandi eigi).

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Enter 31/8/06 23:14

Frekjan alltaf í þér.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 31/8/06 23:15

Þú hefur greinilega lítið verið úti í sólinni Enter minn.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Enter 31/8/06 23:16

Ég er þó allavega með bláan kant á einkennismyndinni minni.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 31/8/06 23:18

Það er mjög lekker. Tónar vel við skyrtuna.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 31/8/06 23:22

Þú sérð ekki buxurnar sem hann er í... úff...

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 31/8/06 23:24

Ég átti von á svari við fyrirspurn minni.

KauBfélagsstjórinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 31/8/06 23:24

Enter mælti:

Ég er þó allavega með bláan kant á einkennismyndinni minni.

‹Áttar sig á hvernig liggur í ákveðnu máli›
Þetta er þá skýringin á kóbaltskortinum hjer. Kóbaltið hefur allt farið í ramma utan um myndirnar af gestunum hjer.

Viðbótarathugasemd:
Vjer tókum allt í einu eftir að 'fyrirfram skilgreindu' sviðslýsingarnar eru horfnar. Það getur valdið vandræðum. Er vjer uppgötvuðum þetta ætluðum vjer t.d. að hrökklast afturábak og hrasa við en gátum það eigi sökum þessa ‹Hrökklast hvorki afturábak nje hrasar við›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 31/8/06 23:25

‹Stekkur hæð sína›‹Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið›‹Gefur frá sér vellíðunarstunu›‹Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann›‹Klórar sér í höfðinu›‹Hrökklast aftur á bak og hrasar við›‹Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið›‹Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er›‹Glottir eins og fífl›‹Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri›xT‹Blótar herfilega og rífur hár sitt›‹Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér›‹Brestur í óstöðvandi grát›‹Starir þegjandi út í loftið›‹Ljómar upp› þetta er allt hjá mér!

KauBfélagsstjórinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 31/8/06 23:30

‹Hrökklast aftur á bak og hrasar við›‹Klórar sér í höfðinu›
Dularfullt... nú virkar þetta ‹Sendir ónefndu hugbúnaðarfyrirtæki brjefasprengju í bögglapósti›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nafni 31/8/06 23:32

Jæja..... sko. Ofnotkun hástafa eru regin mistök og hvaða andskotans fígúra er þetta fyrir framan heiti allra þráða?
Helvítið stal næstum af mér „Kveðist Á “ þræðinum, rækals raunamæða.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
albin 31/8/06 23:36

Þetta er meingallað... afhverju er allt öruvísi núna? svarthvítt! meira að segja myndirnar... var það ekki óþarfi?

-------- Sérlegur launmorðingi Forstjóri Hlerunarstofnunar Tilræðisráðherra Snillingur Orginal
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 31/8/06 23:49

Við skulum ekki gleyma okkur í vanþakklæti og gestapóskri sjálfhverfu og hrósa líka því sem vel er gert.

Við lestur sjálfrar Baggalútssíðuna er snúinn aftur eldri liður en það eru Þrífarar. Ég fagna þessari þróun enda óheyrilega skemmtilegur dægurskammtur, innan um alvöruna sem annars svífur yfir vötnum í óaðfinnanlegri fréttamennsku Baggalúts.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 31/8/06 23:52

Hakuchi mælti:

Við skulum ekki gleyma okkur í vanþakklæti og gestapóskri sjálfhverfu og hrósa líka því sem vel er gert.

Við lestur sjálfrar Baggalútssíðuna er snúinn aftur eldri liður en það eru Þrífarar. Ég fagna þessari þróun enda óheyrilega skemmtilegur dægurskammtur, innan um alvöruna sem annars svífur yfir vötnum í óaðfinnanlegri fréttamennsku Baggalúts.

mæl þú manna heilastur!

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nafni 31/8/06 23:53

‹gleymir sér›.........hver í helvítinu ert þú???

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 31/8/06 23:53

Titill þessa þráðar væri stórgóður sem titill á bók. Hún gæti orðið bagglýsk hliðstæða þessarar hérna.

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 1/9/06 00:42

SANDKASSINN ER BILAÐUR!

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
afbæjarmaður 1/9/06 00:44

Hvernig geta sandkassar bilað?

     1, 2, 3 ... 12, 13, 14  
» Gestapó   » Umvandanir, ábendingar, tilmæli   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: