Sjerstakt svæði var til fyrir svona umræður áður fyrr en svo virðist sem það sje horfið. Þess ber að geta að þessi fyrsta málsgrein er eigi hjer sem kvörtun í anda þráðarins heldur til að skýra ástæðu tilvistar þessa þráðar.
Auðvitað er allt enn að mótast og slípast til en eigi höfum vjer komist hjá að veita eftirfarandi atriðum athygli:
(1) Eigi er svæði til staðar þar sem hæstvirt ritstjórn svarar fyrirspurnum lýðsins.
(2) Eina útópía heims (Baggalútía) er eigi með sjer svæði. Það gæti verið vandamál eða þær umræður e.t.v. runnið saman við aðrar umræður.
(3) Meira síðar (líklega en vonandi eigi).
Þú sérð ekki buxurnar sem hann er í... úff...
Ég er þó allavega með bláan kant á einkennismyndinni minni.
Áttar sig á hvernig liggur í ákveðnu máli
Þetta er þá skýringin á kóbaltskortinum hjer. Kóbaltið hefur allt farið í ramma utan um myndirnar af gestunum hjer.
Viðbótarathugasemd:
Vjer tókum allt í einu eftir að 'fyrirfram skilgreindu' sviðslýsingarnar eru horfnar. Það getur valdið vandræðum. Er vjer uppgötvuðum þetta ætluðum vjer t.d. að hrökklast afturábak og hrasa við en gátum það eigi sökum þessa Hrökklast hvorki afturábak nje hrasar við.
Stekkur hæð sínaRoðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfiðGefur frá sér vellíðunarstunuDæsir mæðulega og lítur út um gluggannKlórar sér í höfðinuHrökklast aftur á bak og hrasar viðBrosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndiðStyður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt erGlottir eins og fíflGrípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátrixTBlótar herfilega og rífur hár sittStrunsar út af sviðinu og skellir á eftir sérBrestur í óstöðvandi grátStarir þegjandi út í loftiðLjómar upp þetta er allt hjá mér!
Hrökklast aftur á bak og hrasar viðKlórar sér í höfðinu
Dularfullt... nú virkar þetta Sendir ónefndu hugbúnaðarfyrirtæki brjefasprengju í bögglapósti.
Jæja..... sko. Ofnotkun hástafa eru regin mistök og hvaða andskotans fígúra er þetta fyrir framan heiti allra þráða?
Helvítið stal næstum af mér Kveðist Á þræðinum, rækals raunamæða.
Þetta er meingallað... afhverju er allt öruvísi núna? svarthvítt! meira að segja myndirnar... var það ekki óþarfi?
Við skulum ekki gleyma okkur í vanþakklæti og gestapóskri sjálfhverfu og hrósa líka því sem vel er gert.
Við lestur sjálfrar Baggalútssíðuna er snúinn aftur eldri liður en það eru Þrífarar. Ég fagna þessari þróun enda óheyrilega skemmtilegur dægurskammtur, innan um alvöruna sem annars svífur yfir vötnum í óaðfinnanlegri fréttamennsku Baggalúts.
Við skulum ekki gleyma okkur í vanþakklæti og gestapóskri sjálfhverfu og hrósa líka því sem vel er gert.
Við lestur sjálfrar Baggalútssíðuna er snúinn aftur eldri liður en það eru Þrífarar. Ég fagna þessari þróun enda óheyrilega skemmtilegur dægurskammtur, innan um alvöruna sem annars svífur yfir vötnum í óaðfinnanlegri fréttamennsku Baggalúts.
mæl þú manna heilastur!
Titill þessa þráðar væri stórgóður sem titill á bók. Hún gæti orðið bagglýsk hliðstæða þessarar hérna.
SANDKASSINN ER BILAÐUR!