Lekur kraninn, laust ég sef,
ljótt er ástandið.
Magnast bæði þras og þref,
ég þyrft næturfrið.
Næturfrið ég nægan hef
núna til að sofa.
Vaki lengur alltaf ef
óhrein hér mín stofa
Stofu- er voru -stássi eytt
stungið dauðans nöpru kló,
hérna yrkir enginn neitt.
Allt er dautt á Gestapó.
Gestapó er góður staður
sem gleymdist lítið þar að ske,
Dauðinn bara bull og þvaður
þótt Bölverkurinn farin sé.
Sé ég gegnum holt og hæðir,
harla margt að líta:
Grúi ferðamanna flæðir,
flestir eru að skíta.
Skítapakk nú skotið niður
skríllinn neitar þessu nú.
Eflaust verður aldrei friður
um Ísrael og þeirra trú.
Ég trúi á tvennt í Heimi,
en tilbið Sanktí-Lars
og glaður aldrei gleymi
gæfu þessa pars.
Parsekúndu piltur þarf
er pillar af þér fé.
Óðara svo í fer hvarf
ég ey hann núna sé.
Sé er ei í orðum hér
í okkar fagra máli
Samt hér stafróf séið ber
og síst hjá Brennu Njáli.
Njáli gefin neitt hún fór en nærði eldinn.
Bergþóru ey banar kuldinn,
í brennunni víst greidd var skuldin.
Skuldavesen meir og meir
margt skal niður skera
Sýnist mér að tveir plúss tveir
tölvert meira vera.
Vera svera vergjörn er,
Vera er ber í keri.
Vera skverar veri hér,
Vera gerir smér úr mér.
Mér er sama meðan ég
menn við eigi sinnast.
Sjaldan fer ég vondan veg
ef vænni götur finnast.
Finnist mönnum fíkjublöð til fata passa
er trúlegt að þeir telji massa-
töff að sjá í bera rassa.
Rassópúlus, ríkur karl og ruddamenni,
níðingsverkin nennti að vinna,
næstum búnað drepa Tinna.
Tinna hefur Tinna elt að Tindastóli.
Upp hann fór á einu hjóli,
er það furð'að nú hún góli?
Gólanhæðir gnæfa hjá
Genesetarvatni.
Ljúgi ekki Lúkas þá
labbaði á því skatni.
Skatni sá er skelfdi Lúkas skammir engar
fékk, en netið fór af hjörum.
Fúkyrðin við sjaldan spörum.