Tj0ldin bráðum falla frá
fína mynd ég sýni.
Myndirna munt sjaldan sjá
sjálfs af þínu tríni.
Trýni mínu týndi ég
um töðugjöldin.
Er hún Jóna, ekki treg,
tók af mér völdin.
Valdabrölt og bankakaup
á bissnes veislufati.
Örugglega apríl hlaup
því allt var þar í plati
Plötukaupatilboðstonn
tölvpóstafárið
tilboðspakkatonn frá bonn
tek ég þetta árið.
Árið reynist erfitt mér
og ekki tók við betra:
Öskutunnuhróið hér
er handan 15 metra.
Metra upp í loftið leið
langi Jón á stultu.
Það var annað Skúla skeið,
skotturnarnir ultu.
Ultu þeir sem áttu að standa
um mig vörð.
Ég, heimaskíts í heljar vanda,
herði gjörð.
Gjörð umm makkan herti hann
horngrýtið at tarna.
Og hengdi þennan mæta mann,
Manga frænda Bjarna:
Bjarni vinur besti er,
bjartur maður, fríður.
Hefur allt sem bróður ber,
brúnu hrossi ríður.
Ríður Bjarni hrossi höltu
heim að Gyli.
Beint í klof á Völu völtu
vænn þar spili.
Spilin sem að guð mér gaf,
gáfu frekar lítið.
Lengst um nætur lítið svaf,
lífið er svo skrítið!
Skrítið hefur Skúli nef
skögultönn og vörtu.
Lítið fyrir garpinn gef
glóa augun svörtu .
Svarti krummi sást í gær,
sunnan vegar hoppa.
Virtist alveg vera fær,
í vegahræ að kroppa.
Kroppa, narta, naga, bít,
nasla, japla, borða.
Drulla, kúka, skeini skít,
og skín sem fálkaorða!
Fálkaorðan skín við skær
skartar á brjósti mínu.
Hringa skorðan tigin tær
talar máli sínu.
Sínu máli talar títt
tigin hringaskorðan,
þannig hún svo fær því flýtt
fyrr að komist norðan.
Norðan fráleitt fara vil,
þar fjarskagott er veður
Engin fýla er þar til
og aldrei skítur skeður.
Skeður erfitt kulda kast
kólna fór í bólunum.
Þegar klaka brynjan brast
bændanna í hólunum