Ljóta átti karlinn kú
kotið rýrt og frúin,
ærin mögur ,Tóta trú,
en tíkinn burtu flúin.
Flóttaleiðin flug og bíll
farinn er úr landi.
Kröfuspjöld og kommaskríll
kom'á þessu strandi.
Strandamaðurinn sterki
stórvið hjó og lerki.
Kaldrananesklerki
karlinn hélt að verki.
Strandi eins víst minnast má
mæddur togar sísli,
er Sátan föst í læknum lá
og á hnjánm Gsli.
Verki mikla Helgi hefur
hrsaði illa í gær.
Magniltöflur Gunna gefur
garminum einar tvær.
2,3,4,5 & 6
fleiri tölur mæta.
Alltaf þetta vex og vex
er við menn þetta bæta.
Bæta laga bóta er þörf
breita hinu og þessu.
Í sveita vegi komin kvörf
og konan fór í messu.
Messuskrúða mætti færa
mjög til bóta núna:
Latexgalla litla, glæra,
lítt sem hylja trúna.
Trúnað öllum trútt ég sýni og typpið líka
(en það er alveg eins og píka).
Þetta hefði einhver getað ort um helgina, í tilefni af tónhátíðinni sem kennd er við Loftbylgjur...
Píkuskrækjapoppmúsík
af pínslufullu sargi rík
& ekki nokkru lagi lík
leggst nú yfir Reykjavík.
Reykjavík þú blessuð borg
björt & yndisfögur.
Gnarrinn mælir teiga torg
tíminn myndar sögur.
Sögurnar margar úr kreppunni hef ég heyrt,
hlykkjóttar raðir úr búðum ég daglega sé.
Nöturlegt hlutskipti þeirra sem aldrei var eirt,
og athafnamennina hlaðna af sjóðum og fé.
Félag íslenskra fasteignasala
fundaði um daginn.
Ástandið var enn að dala,
ekkert gekk í haginn
Hagur versnar, horast þý,
harðnar mjög á dalnum.
Liggja náir naktir í
niðurskurðarvalnum.
Niðurskurðarvalur veldur
voðalegum hugarangri.
hræðslu ótta sekur seldur
sektarkend og depurð langri.
Langri hef ég lifað ævi.
Líklega er komið nóg.
Vitund því með víni slævi.
Verst að það var hinn sem dó.
Dauður eflaust endar þú
eins er það með flesta
lifðu því í þessu nú
það er víst það besta.
Besta flokkinn kaus ég klár
og kann hann vel að meta.
Hann skal ríkja í hundrað ár,
hans er aukin geta.
Í Getafe er gott að spá
get ég um.
Geta fé menn grætt því á
í getraunum