Hóum saman heiðursmönnum
hópumst niðrá Austurvöll.
Glömrum þar með pott og pönnum
platmenn skulum spark'úr höll.
Höllum fæti FLokkurinn nú stendur
fimm hann nær víst inn í borgarstjórn.
Þó að marki bófa sé hann brenndur
blóð- af öðrum heimta vill hann -fórn.
Fórna skal nú feitum gaur
Fallið honum kenna
Hallareksturs höfuð paur
Helvítið skal brenna
Brennunjál víst skorti skegg
sköllóttur í framan
Borðaði hann brauð og egg
og bjór við drukkum saman.
Hallir reisum, hærri þeim,
sem hrundu daga forðum.
Byggjum nýjan, betri heim
úr bræddum fálkaorðum.
örlítið seinn!
Saman tvö við sæl og rjóð
sitjum við vorn keip.
Henni yrki öll mín ljóð,
enda megabeib.
Hallir reisum, hærri þeim,
sem hrundu daga forðum.
Byggjum nýjan, betri heim
úr bræddum fálkaorðum.
........ hvur þremillininn, þetta er mega.
Beibið mitt er bústið fljóð
barmstór ofurgella
Hennar til ég hanna ljóð
holdi reistum lella
Lellan vildi lita á
lítill er og visinn.
Mikið henni Bellu brá
er bölli upp var risinn.
Risinn var hann rekkju úr
og rauk í burt í skyndi
því Bella var að byrja á túr
og bað um dömubindi.
Dömubindahrúgan hér
heldur illa lyktar
Er nú tölvert magn hjá mér
mörg tonn það nú viktar.
vigtin álag eitthvað fær
ekkert mál þó reynist
að draga á tálar djarfa mær
sem dáltið gálleg reynist.
Reynistaðabræður bani
beit á háum fjöllum.
Ég sit heima mig þó mani
menn til þramms í hjöllum.
Hjöllum fiskar hanga á
herðast þorskar gráir
Allir vilja éta þá
afiríku bláir
Bláar hendur misstu mátt
margt þar úldið reyndist.
Gengið var víst heldur hátt
og heiðarleikinn gleymdist.
Gleymdist lamb í kinda kró
krakkinn og líka daman
þá bónbinn gamalt hælis hró
hrópaði nú er gaman.
Gaman er ef gengur vel
glatað er að hanga.
Afturförin ennþá tel
áfram muni ganga.
Ganga saman og gleðjast enn
gestir Jóns á Hala,
konur fríðar og mætir menn
mikið samam tala.
Talað mikið minna gert
máttlaus finnst mér stjórnin,
Argaþras og allt er skert
ill var bankafórnin.
,
Bannkafórninn og skömminn skert
skrattans árans gjallið..
Skrölti ég umm með bakið bert
bjargarlaus eftir fallið.