Niðurföllin nýtast best,
nautnin tæra við þau fæst,
þegar verður manni mest
mál að pissa og klóið læst.
Læstur var við látúnsgafl
í lostafullum ranni
kastað svo í kaldan skafl
af kvinnunar eiginmanni
Eiginmaður er ég góður,
og eru það nokkrar framfarir,
utan hvað ég er alltaf móður
eftir hverjar samfarir.
Samfarir þínar þegja mátt um.
þær eru konum til vansa.
Þær vilja ekki hafa hátt um,
þú hafir á þeim viljað dansa.
Dans er skemmtun duglausra,
dygðum prýddra miður,
skertra, heftra, huglausra;
himpigimpa siður.
Siður er á síðkvöldum
að setjast að á börunum.
Vinarorðum velvöldum
víkja að sætu strákunum.
Strákum með ég stunda sex
og stelpum, allt í fínu:
heimsfrægt kjörorð Homeblest-kex
hef ég gert að mínu.
Strákapörin, stoltir menn,
stæltum flíka skrápnum.
Margir víst þó væflast enn
villtir inn´ í skápnum.
Mín er hugmynd, heldur góð:
hendum dular-kápum !
Komi öll hin arga þjóð
útúr heimsins skápum.
Skápahommar skilst mér hafi
skáldamjöð á borðum
þann er rann úr rassaklofi
á ránfuglinum forðum.
Afsakið hálfrímið
Forðum oft ég fékk mér illa' að haga.
Fór á böll.
Nú er þessi lífs míns sorgarsaga
svo til öll.
Öllara ég ætla mér að opna núna,
er hér líka allt í fína,
æringjarnir flottir grína.
Grínast hérna gárungar
gráir þó í framan.
Kátir gamlir karlpungar
kunna´ að hafa gaman.
gaman væri að geta hér
glaður sungið vísur
láta allflest undan sér
ungar strjúka skvísur.
Skvísur hef ég skoðað vel,
það skemmtun tel ég góða.
Hlerað meyja hugarþel
og heim þeim reynt að bjóða.
Bjóða mætti mér í geim,
mikilsháttar dama
Þó enda þyrfti upp á tveim,
mér alveg væri sama.
Sama er það sem og margt
svona hér og þarna
en það víst er kvein og kvart
sem kann víst þó að harðna.
Þetta er víst frekar samhengislaust, biðst forláts
Harðna dellur haga í
hvar hjörðin var á beit.
Flugnasuðið fylgir því,
ég fegurst þetta veit.
Harnar í ári já dropinn mun dýr
drekk ég samt bjórinn við þorsra
Þó afragstur vinnu sé ræflinum rýr
rosalegt hvað sullið mun kosta.